Nóatúnsfjölskyldan kaupir í Glitni 10. apríl 2007 11:38
Nóatúnsfjölskyldan er meðal nýrra hluthafa í Glitni eftir nýjustu breytingar á eignarhaldi félagsins. Einnig Jötunn, félag tengt Baugi. Gengið hefur verið frá sölu á hlutum í Glitni fyrir hátt í sjötíu milljarða króna. Milestone, undir forystu Karl Wernerssonar og Einar Sveinsson, formaður bankastjórnar Glitnis og aðilar honum tengdir, hafa selt yfir sextán prósent hluta Glitni. Þessir aðilar hafa verið stærstu hluthafarnir í Glitni fyrir utan FL Group. Þáttur sem er félag tengt Milestone mun áfram eiga 7% í Glitni og skuldbindur sig til að selja ekki hlut sinn til ótengdra aðila í 12 mánuði. Alls hefur verið gengið frá sölu 2,4 milljarða hluta og nemur salan hátt í sjötíu milljörðum króna. Saxbygg kaupir um 5% af þessu hlutafé en áður átti félagið tæp 2% í Glitni. Þeir sem standa að Saxbygg eru meðal annar Nóatúnsfjölskyldan og Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Jötunn kaupir um 2,5% en að því félagi standa meðal annars Baugur, Tom Hunter og Pálmi Haraldsson. Þá er er enn óljóst með hver kaupir um átta prósenta hlut sem eftir stendur en Kaupþing sölutryggir þann hlut. Búast má við að Kaupþing hafi nú þegar kaupanda að hlutunum en verði þeir ekki seldir fyrir 16. apríl kaupir Kaupþing þá. Ljóst er að töluverðar breytingar verða með þessu á eigendahópi fyrirtækisins. Ströng ákvæði gilda um hverjir megi fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækjum. Fjármálaeftirlitið er nú að fara yfir söluna.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira