Viðskipti innlent

Ómar hættir hjá Avion

Ómar Benediktsson, forstjóri flugfélagsins Air Atlanta Icelandic, hefur ákveðið að láta af störfum 1. nóvember næstkomandi. Ómar hefur stýrt sameiningu Íslandsflugs og Atlanta en því samrunaferli er nú lokið. Hann mun áfram eiga sinn hlut í Avion Group, móðurfélagi Atlanta, og hefur að beiðni stjórnar félagsins fallist á að sinna ýmsum sérverkefnum fyrir Avion. Ómar var einn af stofnendum Íslandsflugs en hann, ásamt Magnúsi Þorsteinssyni og Gunnari Björgvinssyni, eignuðustu Íslandsflug áður en það varð hluti af Avion Group og sameinaðist Atlanta. Við starfi Ómars tekur Hafþór Hafsteinsson, forstjóri flugflutningasviðs Avion Group, sem kemur tímabundið til með að sinna báðum störfum. >





Fleiri fréttir

Sjá meira


×