Húsnæðisvextir kunni að hækka 30. september 2005 00:01
Frekari stýrivaxtahækkanir Seðlabankans, og til lengri tíma en fjármálamarkaðurinn hafði reiknað með kunna að leiða til þess að vextir af húsnæðislánum almennings hækki og þar með útgjöld heimilanna. Krónan kann að styrkjast mun meira en orðið er og erlendir gjaldmiðlar þannig að lækka í verði á næstunni í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í gær sem var talsvert meiri en peningamarkaðurinn hafði reiknað með. Seðlabankinn gefur auk þess skýrt til kynna að hann ætli að hækka vexti mun meira og halda þeim háum mun lengur en sérfræðingar fjármálamarkaðarins höfðu gert ráð fyrir, segja sérfræðingar KB banka meðal annars um nýjustu aðgerðir Seðlabankans í gær. Stýrivaxtahækkunin kemur við almenning á fleiri vegu en í hækkun vaxta af húsnæðislánum því ef krónan fer enn hækkandi ætti verð á innfluttum vörum að lækka eitthvað sem yki kaupmátt og ætti að draga eitthvað úr verðbólgu til skamms tíma litið. Sérfræðingar eru sammála um að aðgerðir Seðlabankans miði að því að fall krónunnar og verðbólguskotið í kjölfar þennslunnar um aldamótin endurtaki sig ekki en greiningardeildir bankanna hafa spáð því að krónan falli um allt að 25 prósent á næstu tveimur árum, sem aftur myndi rýra kaupmátt almennings. Seðlabankinn ætlar semsagt að reyna að sporna við því gengisfalli. Talsmenn útflutningsgreinanna hafa þegar lýst því að krónan sé orðin svo há að starfssemi þeirra sé í auknum mæli að hrekjast úr landi og að það kunni í framtíðinni að hafa áhrif á atvinnuástandið í landinu sem auðvitað snertir þá almenning og að það sé sú neikvæða útrás sem ekki megi tala um.
Mest lesið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Neytendur Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Viðskipti innlent Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Neytendur „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Sjá meira