Viðskipti innlent

Ellefu lífeyrissjóðir eiga nærri helming hlutafjár í Icelandair

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Lífeyrissjóðir eru meðal stærstu hluthafa í Icelandair og þurfa að ákveða hvort þeir ætli að taka þátt í hlutafjárútboði félagsins vegna stöðunnar á flugmarkaði. 
Lífeyrissjóðir eru meðal stærstu hluthafa í Icelandair og þurfa að ákveða hvort þeir ætli að taka þátt í hlutafjárútboði félagsins vegna stöðunnar á flugmarkaði.  Vísir/ Vilhelm

Ellefu lífeyrssjóðir eru meðal tuttugu stærstu hluthafa í Icelandair þar af er Lífeyrissjóður verslunarmanna annar stærsti hluthafi í félaginu. Formaður VR segir að ekki verði lagt upp í björgunarleiðangur fyrir Icelandair nema félagið standi vörð um réttindi fólks. Þá þurfi fyrst og fremst að huga að því við fjárfestingu að hún sé fýsileg fyrir sjóðsfélaga.

Icelandair hyggst segja upp stórum hluta starfsmanna sinna um mánaðarmótin vegna erfiðrar stöðu í kjölfar kórónuveirufaraldursins.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair.Foto: Egill/Egill Aðalsteinsson

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri félagsins sagði á Sprengisandi í gær að félagið hafi orðið fyrir miklu tekjutapi síðustu mánuði, í raun væri um væri að ræða algjöran tekjubrest. Félagið kæmist ekki gegnum sumarið nema nýtt fé kæmi inn. Nú sé stefnt á að gefa út nýtt hlutafé þar sem uppleggið er að fá fjárfesta að félaginu og hugsanlega kæmi ríkið í framhaldinu með lánalínur.

Stærsti hluthafinn í félaginu er Par Investment Partners L.P. Boston en það félag seldi um 0,2% hlut í flugfélaginu fyrir helgi og fer nú með 13,5 % hlut í félaginu.

Meðal annarra stærstu hluthafa í Icelandair eru ellefu lífeyrissjóðir. Þar er Lífeyrissjóður Verslunarmanna næststærstur með um tólf prósenta hlut. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er verið að meta kosti þess þar að kaupa nýtt hlutafé í Icelandair. Samtals eiga lífeyrisjóðirnir eiga 43,6% í Icelandair

Gildi, Birta og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkissins A- deild eru í þriðja, fjórða og fimmta sæti og aðrir lífeyrissjóðir þar fyrir neðan. 

Mikil lækkun hefur verið á hlutabréfaverði félagsins síðustu þrjá mánuði en gengið var um 6 á hlut í byrjun mars en var í kringum 2,8 í morgun og hafði hækkað um frá því fyrir helgi. 

Visir/Vilhelm

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir að ekki verði farið í björgunaraðgerðir vegna Icelandair nema það sé góður fjárfestingarkostur.

„Staðan er flókin fyrir lífeyrissjóði sem eru stórir hluthafar í Icelandair og þeir þurfa fyrst og fremst að taka ákvarðanir sem byggja fyrst og fremst á hagsmunum sjóðsfélaga.   Lífeyrissjóðir hafa enga heimild til þess að taka mikla áhættu þannig að þeir munu taka ákvörðun út frá gæðum fjárfestingarinnar sem slíkrar. Þeir munu ekki bara koma með fjármagn inn í félagið af því ríkið gerir það. Þetta verður tekið á faglegum forsendum. Þá hafa verkalýðsfélögin ályktað að lífeyrissjóðir taki tillit til þess hvernig komið er fram við starfsfólk og að fyrirtæki fari að leikreglum á vinnumarkaði sem við höfum sett þegar teknar eru ákvarðanir um fjárfestingar almennt. við fylgjumst mjög vel með því hvað sjóðirnir eru að gera þessa dagana. Þeir eru í mjög sérstakri stöðu þar sem að markaðir hafa verið í frjálsu falli og mörg fyrirtæki í eigu lífeyrissjóðanna líta ekkert alltof vel út,“ segir Ragnar Þór. 

Það sé ekki öfundsverð staða að stjórna lífeyrissjóði í dag. 

„Það er ekki hægt að réttlæta frekari fjárfestingar nema hægt sé að sýna fram á rekstrarlegar forsendur. Það gera sér allir grein fyrir því að þegar flugið og ferðaþjónustan taka við sér aftur þá gerist það hægt og verður ekki liðið að það verði „gamblað“ með eignir sjóðsfélaga. Það verðru ekki farið í sérstakar björgunaraðgerðir bara til að tryggja aðgjang að fjármagni frá ríkinu heldur verður aðeins tekin fagleg ákvörðun,“ segir Ragnar Þór. 

 


Tengdar fréttir

Sammála um að ríkið þurfi að koma Icelandair til aðstoðar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, telja báðir að ríkisstjórnin eigi að hafa frumkvæði að því að lýsa því yfir að stjórnvöld muni koma Icelandair til aðstoðar.

Formenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna í Víglínunni

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar telja báðir að ríkisstjórnin eigi að hafa frumkvæði að því að lýsa því yfir að stjórnvöld muni aðstoða Icelandair. Kistur ríkissjóðs séu hins vegar ekki ótæmandi.

Fjölda­upp­sagnir hjá Icelandair eftir helgi

Koma mun til fjöldauppsagna hjá Icelandair strax eftir helgi. „Við verðum því miður að grípa til mjög erfiðra og mikilla aðgerða til að minnka útflæði fjármagns.“ Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×