Óskað eftir tillögum að uppbyggingu við Reykjanesvita Atli Ísleifsson skrifar 29. janúar 2016 10:01 Reykjanesviti. Vísir/GVA
Stjórn Reykjanes UNESCO Global Geopark hefur auglýst eftir áhugasömum aðilum sem tilbúnir eru að hefja uppbyggingu ferðaþjónustu fyrir Reykjanesvita og nágrenni. Í tilkynningu frá Visit Reykjanes segir að Reykjanes UNESCO Global Geopark og Reykjanesbær hafi undanfarin ár unnið að gerð deiliskipulags fyrir svæðið. Skipulagið var samþykkt í janúar 2016 og gerir ráð fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á hverfisvernduðu svæði. „Leiðarljós við mat á tillögum verður hve mikil jákvæð áhrif ætla má að tillagan hafi fyrir umhverfi, náttúru og mannlíf á svæðinu. Auk þess sem litið verður til fjárhagslegs og faglegs styrks til þess að ljúka uppbyggingu svæðisins. Reykjanesviti og nágrenni hafa mikið aðdráttarafl. Áætlað er að um 200.000 gestir hafi heimsótt svæðið á árinu 2015. Með bættu aðgengi ásamt skipulagðri og markvissri uppbyggingu þar og í næsta nágrenni getur svæðið tekið við mun fleiri gestum. Í nágrenni Reykjanesvita er fyrirhuguð mikil uppbygging í ferðaþjónustu en fyrir eru staðir sem njóta mikilla vinsælda meðal ferðamanna s.s. Brú milli heimsálfa, Gunnuhver og Brimketill,“ segir í tilkynningunni.Deiluskipulag svæðisins.Í tillögum þarf í stuttu máli að lýsa áformum um gerð og umfang uppbyggingar, starfsemi og uppbyggingarhraða. Gæta þarf samræmis við deiliskipulag frá janúar 2016. Aðilum sem tilkynna áhuga verður greint frá vali þeirra sem falið verður að útfæra hugmyndir nánar eigi síðar en 10. mars 2016.
Mest lesið Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Sjá meira
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki