Starfsmenn Kaupþings gætu þurft að greiða 18 milljarða í skatt 2. maí 2009 18:42
Ef starfsmenn Kaupþings hafa fengið skuldir vegna hlutabréfaviðskipta í bankanum felldar niður, þurfa þeir að greiða samtals um átján milljarða í skatt. Verið er að skoða önnur fyrirtæki vegna svipaðra mála. Fréttir af afskriftum skulda vegna hlutabréfaviðskipta starfsmanna Kaupþings ollu miklu fjaðrafoki eftir bankahrunið í haust. Talið er að starfsmenn Kaupþings hafi skuldað bankanum allt að 50 milljarða króna, en misvísandi upplýsingar bárust annars vegar frá stjórnendum gamla bankans og hins vegar stjórnendum nýja bankans á sínum tíma um hvort niðurfellingin hafi raunverulega farið fram. Málið er enn í lausu lofti, en ýmis lögfræðileg álitaefni koma upp við úrlausn þess - meðal annars vegna þess að í mörgum tilfellum voru einkahlutafélög mynduð utan um viðskiptin. Ef skuldaniðurfellingin gengur eftir þurfa starfsmenn bankans sem fengu slíka ívilnun að greiða samtals tæpa 18 milljarða króna í skatt vegna þess. Það er vegna þess að niðurfelling skulda starfsmannana væri túlkuð sem laun og hún skattlögð eins og hver önnur launagreiðsla. Stutt er síðan landsmenn skiluðu inn skattskýrslu fyrir árið 2008, en skattalög kveða á um að telja beri til tekna allar niðurfellingar skulda, nema þær stafi af nauðarsamningum, greiðsluaðlögun eða gjaldþroti. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur þetta umdeilda mál ekki verið til lykta leitt skattalega séð, enda ekki enn ljóst hvort eða hvenær skuldirnar voru felldar niður. Ekki náðist í Steinar Þór Guðgeirsson, formann skilanefndar Kaupþings, né Finn Sveinbjörnsson, bankastjóra Nýja Kaupþings í dag, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Heimildir fréttastofu herma að þetta mál sé ekki einsdæmi og verið sé að skoða önnur fyrirtæki vegna svipaðra mála.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira