Vill að Gerrard verði spilandi stjóri hjá Rangers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2018 17:00 Steven Gerrard í góðgerðaleik Dirk Kuyt á dögunum. Vísir/Getty
Steven Gerrard er tekinn við sem knattspyrnustjóri Rangers í Skotlandi en ein goðsögnin úr sögu Rangers vill sjá Gerrard ganga enn lengra. Andy Goram var markvörður Rangers-liðsins á árunum 1991 til 1998 þegar félagið vann skosku deildina sex sinnum. Hann hefur kallað eftir því að Gerrard taki skóna af hillunni. Steven Gerrard setti knattspyrnuskóna á hilluna árið 2016 og hóf störf sem þjálfari hjá Liverpool. Hann stökk hinsvegar á það þegar honum bauðst að taka við liði Rangers á dögunum. Gerrard lék síðast með LA Galaxy í bandarísku deildinni en allan sinn feril í Evrópu spilaði hann með Liverpool. „Ef ég væri Steven Gerrard þá myndi ég byrja á því að taka skóna ofan af hillunni. Hann er tíu sinnum betri en allir þeir sem spila á miðjunni hjá Rangers í dag,“ sagði Andy Goram í viðtali við Daily Mail í Skotlandi. „Hvað er hann gamall? 38 ára. Inn á völlinn með hann,“ bætti Goram við. Gerrard spilaði síðast á Bretlandseyjum með Liverpool tímabilið 2014-15. „Ef þið hafið skoðað hvernig Rangers-liðið spilaði á síðasta tímabili þá getur enginn sannfært mig um að Steven Gerrard myndi ekki standa sig miklu betur en allir leikmenn liðsins í dag,“ sagði Goram. „Hann væri yfirmaður á miðjunni á móti flestum liðum. Eiginlega öllum liðum ef ég segi alveg eins og er,“ sagði Goram.
Enski boltinn Mest lesið Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Íslenski boltinn FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Afsalar sér óvænt öllum heimsmeistaratitlum Sport AC Milan kaupir Ramos fyrir metfé Fótbolti Hleypur í óvenjulegum aðstæðum: „Rosalegur hiti hérna“ Sport Dembele stal senunni frá Mbappé á móti varaliði Norðmanna Fótbolti Búið að slá markametið á HM í fótbolta Fótbolti Fleiri fréttir Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Sjá meira