Yao Ming gagnrýndur harðlega í Kína 18. júlí 2007 14:14 NordicPhotos/GettyImages
Íþróttaráðið í Kína gagnrýnir miðherjann Yao Ming harðlega í nýjustu útgáfu China Sports Daily sem er málgagn ráðsins í landinu. Ming er gagnrýndur fyrir að koma seint til æfinga með landsliðinu og þar setja menn stórt spurningamerki við það hve miklum tíma hann eyðir í að sinna einkalífinu. Þetta þykir ekki bera vott um hollustu við þjóðina. Yao Ming leikur með Houston Rockets í NBA deildinni og var hann í blaðinu gagnrýndur fyrir að taka sér of langa hvíld eftir síðasta keppnistímabil. Þá þótti íþróttaráðinu í Kína hann taka allt of langan tíma í að undirbúa brauðkaupið sitt í sumar og spurningamerki voru sett við það að hann eyddi tíma í að koma fram á Ólympíuleikum fatlaðra og starfi sem hann vann við að kynna fyrirhugaða Ólympíuleika í Peking á næsta ári. "Sama hversu göfugt þetta starf hans er, má það ekki taka svona mikinn tíma frá honum. Alveg sama hversu dásamlegt einkalífið er - verður það ekki borið saman við dýrðina sem fylgir því að keppa fyrir hönd þjóðarinnar allrar," sagði í greininni í China Sports Daily. Þetta er harðasta gagnrýni sem Yao Ming hefur orðið fyrir í heimalandi sínu á ferlinum, en þó er þetta ekki í fyrsta skipti sem andar köldu á milli íþróttaráðsins og körfuboltamanns. Framherjinn Wang Zhizhi hjá Dallas Mavericks - sem á sínum tíma var fyrsti Kínverjinn til að spila í NBA - var á sínum tíma settur í fimm ára útlegð frá landsliðinu eftir að hann neitaði eitt sinn að spila fyrir landsliðið. Hann fékk ekki að spila fyrir þjóð sína aftur fyrra en hann baðst auðmjúklega afsökunar.
NBA Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira