Novator nær fullum yfirráðum yfir Actavis 18. júlí 2007 01:45 Sindri Sindrason tilkynnir um það á blaðamannafundi undir lok síðasta mánaðar að stjórn Actavis styðji yfirtökutilboð Novators. Markaðurinn/Anton
Upphafsstafur:Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur tryggt sér yfir 90 prósent hlutafjár í Actavis. Við þetta myndast söluskylda hjá eftirstandandi hluthöfum. Novator eignast Actavis að fullu og félagið verður í framhaldinu skráð af markaði. Yfirtakan er sú stærsta í Kauphöllinni hér til þessa. Yfirtökutilboð Actavis hljóðar upp á 1,075 evrur á hvern hlut. Hluthafar sem ekki hafa samþykkt tilboðið hafa frest þar til á morgun til að ganga frá samþykki, öðrum kosti fellur niður réttur þeirra á viðbótargreiðslu komi til þess að Novator selji hlut sinn innan 12 mánaða. Björgólfur Thor Björgólfsson segir ekkert liggja fyrir um mögulegan samruna við önnur félög. „En við munum skoða hvað er að gerast á markaðnum hverju sinni og vega og meta okkar stöðu í ljósi þess,“ segir hann. Komið hefur fram að ákvörðun Novators um að taka félagið yfir og skrá af markaði var ekki síst tekin með það að leiðarljósi að létta af félaginu upplýsingaskyldu sem annars kynni að hefta félagið í samningaviðræðum við önnur félög. Björgólfur segir sölu á fjárfestingum í Austur-Evrópu og yfirtökuna á Actavis nú ekki til marks um miklar breytingar. „Actavis verður áfram stærsta fjárfestingin hjá mér. Við höldum sama stjórnendateymi og við höldum áfram að vinna að því eins vel og við getum að rækta fyrirtækið,“ segir hann og telur breytt eignarhald í raun tæknilega breytingu hvað hann sjálfan varðar. Hann er þó að vonum feginn að nú sjái fyrir endann á yfirtökuferlinu. „Gott er að vera búinn með þetta til að geta einbeitt sér að sókninni,“ segir hann, en þakkar um leið hluthöfum í Actavis samferðina og bendir á að verðmæti Actavis hafi 28-faldast fá árinu 1999. Gangurinn í yfirtökunni segir Björgólfur að hafi verið eins og við var að búast þótt seinagangur hafi verið í kerfinu við að ná til baka áskriftum. „Þetta er langfjölmennasta hlutafélag sem verið er að taka af markaði og á lokadegi sprakk kerfið, þannig að ekki hafðist undan við að taka við. Við þurftum því að lengja tilboðið, en annars hefur þetta verið eins og við hefðum kosið og við sátt við ferlið.“
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira