Dræmur vöxtur vöruskipta hjá G7-iðnríkjunum 18. júlí 2007 04:30 Aukningu í vöruinnflutningi G7-ríkjanna má að mestu rekja til aukinnar innlendrar eftirspurnar í Þýskalandi.
Vöruútflutningur sjö helstu iðnríkja heims (G7) jókst um 0,9 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs frá fjórðungnum á undan. Þetta sýna nýbirtar tölur Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) yfir alþjóðlegar hagstærðir. Til G7-landanna teljast Kanada, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Japan, Bretland og Bandaríkin. Vöruinnflutningur á tímabilinu jókst um 1,5 prósent. Það stjórnaðist að mestu af aukinni eftirspurn í Þýskalandi. Miðað við árið á undan hafa vöruskipti aukist töluvert, útflutningur um 3,4 prósent og innflutningur um 4,1 prósent. Vöruútflutningur frá Þýskalandi jókst um 0,7 prósent miðað við fjórðunginn á undan. Á sama tíma jókst innflutningur um 8,6 prósent. Á milli ára hefur vöruútflutningur í Þýskalandi aukist um 11,4 prósent og innflutningur um 15,4 prósent. Í Bandaríkjunum jókst vöruinnflutningur um 0,2 prósent og innflutningur um 1,4 prósent á milli ársfjórðunga. Miðað við árið á undan hefur útflutningur aukist um sex prósent og innflutningur um 2,1 prósent, vel undir meðaltali G7-landanna. Milli ársfjórðunga jókst útflutningur mest í Japan, eða um tvö prósent. Þar dróst innflutningur jafnframt mest saman, eða um 3,3 prósent milli ársfjórðunga.
Mest lesið Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira