Stýrivextir hækka 29. október 2004 00:01
Seðlabankinn tilkynnti í gær um hækkun stýrivaxta. Hækkunin tekur gildi um mánaðamót og verða stýrivextir bankans 7,25 prósent. Hækkunin í gær nam hálfu prósentustigi. Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að verðbólguvæntingar hafi þokast upp á við upp á síðkastið og því sé raunvaxtastigið ekki að hækka. Raunvextir eru vextir að frádreginni verðbólgu. Að sögn Birgis Ísleifs Gunnarssonar seðlabankastjóra er ákvörðunin tekin því Seðlabankinn telji að of mikil þensla sé í hagkerfinu. "Það er ansi mikil bólga í öllu. Það er gríðarleg ásókn í þessi fasteignaveðlán bankanna sem auðvitað ýtir undir þenslu, hvernig sem á það er litið. Þetta losar um fé og jafnvel þótt allt fari í endurfjármögnun þá er augljóst að það er verið að létta greiðslubyrðina," segir hann. Birgir Ísleifur telur að meira aðhald hafi þurft að vera í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. "Við teljum að það sé verkefni sem Alþingi standi frammi fyrir í sambandi við endanlegan frágang fjárlaganna að það komi fram meira aðhald í endanlegum fjárlögum heldur en fjárlagafrumvarpið sýnir," segir Birgir Ísleifur.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira