Velta í dagvöruverslun eykst um 3,3% milli ára 10. desember 2010 13:09
Velta í dagvöruverslun jókst um 3,3% á föstu verðlagi í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra og um 3,5% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í nóvember um 3,7% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 0,2% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í yfirliti frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að sala áfengis dróst saman um 2,5% í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 2,5% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í nóvember 5,0% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 5,1% hærra í nóvember síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun var 19,3% minni í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og minnkaði um 19,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum lækkaði um 0,1% í nóvember síðastliðnum frá sama mánuði ári fyrr. Velta skóverslunar minnkaði um 21,5% í nóvember á föstu verðlagi og um 17,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði um 5,5% frá nóvember í fyrra. Velta húsgagnaverslana var 0,1% meiri í nóvember en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 2,6% á breytilegu verðlagi. Velta sérverslana með rúm jókst um 0,6% frá því í fyrra á föstu verðlagi. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna var 18,8% meiri í október síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Verð á húsgögnum var 2,5% hærra í nóvember síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Sala á raftækjum í nóvember jókst um 27,9% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 18,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum lækkaði um 5,6% frá nóvember 2009.
Mest lesið Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent