Ancelotti: Guardiola er snillingur Arnar Geir Halldórsson skrifar 1. janúar 2020 10:00 Tveir af sigursælustu stjórum aldarinnar. vísir/getty
Það verða tvær kanónur á hliðarlínunni á Etihad leikvangnum í Manchester í dag þegar Everton heimsækir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Carlo Ancelotti tók nýverið við stjórnartaumunum hjá Everton og mætir lærisveinum Pep Guardiola í dag. Þarna fara tveir sigursælustu knattspyrnustjórar þessarar aldar í evrópskri knattspyrnu. Ancelotti tók við Bayern Munchen af Guardiola þegar sá síðarnefndi færði sig um set til Englands og segir Ancelotti að á milli þeirra ríki mikil virðing. „Pep er stórkostlegur knattspyrnustjóri. Ég á í góðu sambandi við hann. Það er gagnkvæm virðing á milli okkar. Á ákveðnum sviðum er hann snillingur. Hann er alltaf að reyna að gera eitthvað sérstakt með sín lið,“ segir Ancelotti. Everton hefur unnið báða leiki sína síðan Ancelotti tók við, gegn Newcastle og Burnley en Ítalinn þrautreyndi gerir sér grein fyrir krefjandi verkefni dagsins. „Að spila við Manchester City er frábært próf fyrir okkur til að sjá hvar við stöndum. Þetta er mjög sterkt lið en við erum fullir sjálfstrausts og erum á góðri siglingu. Við eigum að vera ánægðir með að fá að keppa við bestu lið Englands og eitt besta lið Evrópu,“ segir Ancelotti.
Enski boltinn Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Tapaði titlinum í lokabeygjunni Sport Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira