Skallagrímur setur pressu á úrslitakeppnissæti eftir spennusigur Anton Ingi Leifsson skrifar 8. febrúar 2020 16:35 Sigrún Sjöfn gerði átta stig í dag. vísir/daníel
Skallagrímur þurfti heldur betur að hafa fyrir hlutunum í sigri á Breiðabliki er liðin mættust í 20. umferð Dominos-deildar kvenna í dag. Lokatölur 75-73. Breiðablik kom af krafti inn í leikinn og var 24-17 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Skallagrímur beit frá sér í hálfleik en gestirnir úr Kópavogi voru stigi yfir í hálfleik, 37-36. After kom Breiðablik af krafti út í þriðja leikhlutann og var með átta stiga forystu fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Þegar ein mínúta var eftir af leiknum var staðan jöfn, 73-73. Keira Breeanne Robinson afgreiddi leikinn af vítalínunni með tveimur skotum er 48 sekúndur voru eftir af leiknum. Gestirnir náðu ekki að gera sér mat úr þeirra sóknum og öflugur sigur Borgnesinga. Áðurnefnd Keira var mögnuð í liði Skallagríms. Hún skoraði 32 stig, tók ellefu fráköst og gaf sex stoðsendingar. Emilie Sofie Hesseldal skoraði 22 stig og tók sextán fráköst. Danni L Williams skoraði 36 stig fyrir Breiðablik. Auk þess tók hún tólf fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Fanney Lind G. Thomas skoraði 15 stig og tók níu fráköst. Skallagrímur er því komið upp að hlið Keflavíkur í fjórða til fimmta sætinu en Keflavík spilar nú við granna sína í Grindavík. Breiðablik er í næst neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ólympíumeistari í bráðaaðgerð á hálsi Sport Sjáðu mark Kristins frá miðju og hin sem skiluðu sextíu milljónum í kassann Fótbolti Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Girti niður um liðsfélagann í markafagni Enski boltinn Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Íslenski boltinn Snoop Dogg ráðinn þjálfari fyrir Vetrarólympíuleikana Sport Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Golf Sjáðu Albert tryggja Fiorentina sætan sigur Fótbolti Stjörnur HM teknar að hætti Audda Blö Sport „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ Handbolti Fleiri fréttir „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Uppgjörið: Valur - Keflavík 111-91 | Valur þurfti ekki að hafa mikið fyrir fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Grindavík - Ármann 105-85| Nýliðarnir létu toppliðið vinna fyrir kaupinu sínu Hafa jafnað við metlið Golden State Warriors Uppgjörið: Njarðvík-Valur 94-90| Frábær endurkomu sigur skilar Njarðvík toppsætinu Stjarnan steig á bensíngjöfina og kláraði Tindastól að lokum Tryggvi hafði hægt um sig í sigri „Ég er yfirleitt ekki með neinn kjaft“ Leik lokið: Ármann 70 - 106 Grindavík | Stórsigur Grindavíkur á lánlausum nýliðum Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Fyrsti sigur Hamars/Þórs kom gegn Keflavík Tindastóll með fellu gegn Keilu í Eistlandi Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ „Hann er ekkert eðlilega mikilvægur “ Rekinn út úr húsi vegna viðbragða þegar mótherji ætlaði að hlera leikhléið „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 118-67 | Toppliðið tekið til slátrunar Tryggvi reif til sín flest fráköst Ármann - Þór Þ. 110-85 | Ármenningar komnir á blað Var að fara að spila fyrsta landsleikinn fyrir Ísland þegar hann sleit „Álftanes er með dýrt lið” Blikar unnu í Grafarvogi og fimm lið eru jöfn á toppnum Uppgjörið:Keflavík - KR 104-85| Auðvelt hjá Keflavík - Vandræði KR halda áfram Uppgjör: Tindastóll-ÍA 102-87 | Stólarnir unnu bangsaleikinn Uppgjörið: Valur - Njarðvík 94-86 | Valur átti síðasta áhlaupið og tryggði sér sigurinn Uppgjör: ÍR-Álftanes 97-86 | Skoruðu tíu fleiri þrista Sjá meira