Tíska og hönnun

Sér eftir að hafa tekið „skinkutímabil“ í förðun

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Júlíana Sara Gunnarsdóttir er þekkt fyrir þætti eins og Þær tvær og Venjulegt fólk.
Júlíana Sara Gunnarsdóttir er þekkt fyrir þætti eins og Þær tvær og Venjulegt fólk. HI beauty

Leikkonan Júlíana Sara Gunnarsdóttir segir að hún hafi fyrst lært að farða sig almennilega eftir háskólanám, en fram af því hafði hún oftast bara verið með maskara og sólarpúður.

Hún rifjar upp að tíu ára gömul fór hún förðuð á skólaball, með glimmeraugnskugga um allt andlitið, svo áhuginn á snyrtivörum kviknaði snemma.

„Þetta var hræðilegt. Ég var tíu ára og mamma leyfði mér bara að fara svona út úr húsi.“

Alltaf með sama naglalakkið

Það er eitt förðunartrend sem hún sér eftir að hafa tekið þátt í síðustu ár.

„Það var skinkutímabilið. Rosalega skemmtilegt því það eru til svo margar myndir af mér frá því tímabili, þar sem ég er með gult hár og rosa mikið sólarpúður. Ég tók í því trendi, því glæsilega trendi og ég get alveg sagt að ég sjái eftir því í dag.“

Júlíana Sara hefur notað sama litinn að naglalakki í tvö ár, sem er frá Essie og kallast Fiji.

„Ég fer ekki út úr húsi án þess að vera með naglalakk og þá þetta.“

Hún viðurkennir að naglalakka sig annan hvern dag, sem geti verið svolítið pirrandi.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir neðan en þar talar Júlíana Sara um sínar uppáhalds snyrtivörur. Einnig kennir Heiður Ósk henni að gera sápuaugabrúnir og teiknaðar freknur og fleira í þættinum.

Klippa: Snyrtiborðið með HI beauty - Júlíana Sara Gunnarsdóttir

Heiður Ósk og Ingunn Sig eigendur Reykjavík Makeup School eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins með HI Beauty. Þær eru farðaðar með vörum frá YSL beauty, Urban Decay og Lancome. Þættirnir eru teknir upp í Reykjavík Makeup School og verða sýndir vikulega hér á Vísi. 

Instagram: @the_hibeauty


Tengdar fréttir

„Við hlæjum svolítið oft að þessu tímabili“

Söngkonan Klara Elias var gestur í Snyrtiborðið með HI beauty. Klara er nýlega flutt aftur til Íslands eftir að búa í 11 ár í Los Angeles. Hún byrjaði snemma að syngja og hefur starfað við tónlist frá 18 ára aldri, þegar hljómsveitin NYLON var stofnuð.

„Ég lita alltaf hárið á mér sjálf“

Svala Björgvins er fyrsti gestur Heiðar Óskar og Ingunnar Sig í þáttunum Snyrtiborðið með HI beauty og ræddi þar um allt á milli himins og jarðar tengt förðun, húðumhyrðu, hárinu og snyrtivörum og auðvitað tónlistinni líka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×