Ronaldo með tvennu þegar Juve burstaði Parma

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Gleðin við völd.
Gleðin við völd. vísir/Getty

Ítalíumeistarar Juventus áttu ekki í neinum vandræðum með Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Á 23.mínútu kom Svíinn Dejan Kulusevski Juventus í forystu en hann gekk í raðir meistaranna frá Parma síðasta sumar.

Nokkrum mínútum síðar stimplaði Cristiano Ronaldo sig inn með flottu skallamarki. Ronaldo var aftur á ferðinni í upphafi síðari hálfleiks þegar hann kom Juventus í 0-3 með öðru marki sínu.

Alvaro Morata rak svo síðasta naglann í kistu Parma með marki á 86.mínútu. Lokatölur 0-4.

Juventus enn taplaust á tímabilinu og er nú aðeins einu stigi á eftir toppliði AC Milan, sem á þó leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira