Viðskipti innlent

Prent­smiðjur sam­einast undir merkjum Lit­rófs

Atli Ísleifsson skrifar
Litróf var stofnað árið 1943.
Litróf var stofnað árið 1943. Litróf

Prentsmiðjurnar Litróf, GuðjónÓ og Prenttækni hafa sameinast undir merki Litrófs.

Frá þessu segir í tilkynningu. Þar segir að fyrir nokkru hafi Litróf keypt bókbandsvinnustofuna Bókavirkið ehf. og sé því með alla framleiðslulínuna við bókagerð.

Haft er eftir Konráð Inga Jónssyni, framkvæmdastjóra Litrófs, að Litróf sé orðið býsna gamalgróið fyrirtæki og hafi verið rekið á sömu kennitölunni í 77 ár, stofnað 1943.

„Með sameiningunni við GuðjónÓ og Prenttækni erum við fyrst og fremst að bæta reksturinn enn frekar og tryggja áfram góða alhliða prentþjónustu fyrir fólk og fyrirtæki,“ segir Konráð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×