Bíll Grosjeans, en hann ekur fyrir liðið Haas, fór í tvennt í skelfilegu slysi í fyrsta hring keppninnar í Barein um helgina. Ótrúlegt en satt þá slapp Grosjean úr brennandi bíl sínum án mjög alvarlegra áverka.
Hann er þó með brunasár á höndunum, eins og sjá má í kveðju sem hann sendi frá sér á Instagram.
„Hæ þið öll. Ég vildi bara segja að það er í lagi með mig, eða alla vega að mestu,“ sagði franski ökuþórinn. Hann kvaðst þakklátur fyrir Halo höfuðhlífðarbúnaðinn sem byrjað var að nota árið 2018.
„Takk kærlega fyrir öll skilaboðin. Ég var ekki hrifinn af Halo fyrir nokkrum árum en núna finnst mér það vera það besta sem komið hefur í Formúlu 1, og án þess gæti ég ekki verið að tala við ykkur núna,“ sagði Grosjean um leið og hann þakkaði einnig læknum og sjúkrateymi bæði á spítalanum og á keppnisbrautinni.
Alþjóða akstursíþróttasambandið hefur hafið rannsókn á því hvað gerðist í slysinu um helgina.