Viðskipti erlent

Norwegian í frjálsu falli

Atli Ísleifsson skrifar
Hver hlutur í Norwegian kostar nú um 40 norska aura, samanborið við um 40 norskar krónur í byrjun árs.
Hver hlutur í Norwegian kostar nú um 40 norska aura, samanborið við um 40 norskar krónur í byrjun árs. Getty

Hlutabréf í norska flugfélaginu Norwegian hafa hríðfallið í norsku kauphöllinni í morgun. Frá opnun hafa virði bréfanna fallið um 15 prósent.

Greint var frá því í gær að félagið hafi sótt um gjaldþrotavernd á Írlandi fyrir tvö dótturfélög sín og mun dómstóll á Írlandi taka málið fyrir þann 7. desember næstkomandi.

Stjórnendur Norwegian ákváðu að fara þessa leið eftir að norsk stjórnvöld tilkynntu að ekki stæði til að veita félaginu frekari ríkisaðstoð, til viðbótar við þá þrjá milljarða norskra króna sem norska ríkið veitti félaginu í maí.

Fulltrúar norskra stjórnvalda hafa rökstutt ákvörðunina með því að segja að eigendastrúktúr félagsins sé óskýr og sömuleiðis hafi eigendurnir sjálfir þótt óvirkir í viðbrögðum sínum vegna áhrifa heimsfaraldursins.

Stjórnendur Norwegian hafa áður sagt að fé félagsins verði að óbreyttu á þrotum á fyrsta ársfjórðungi 2021 og hefur nú verið leitast eftir gjaldþrotavernd til að endurskipuleggja megi reksturinn.

Hver hlutur í Norwegian kostar nú um 40 norska aura, samanborið við um 40 norskar krónur í byrjun árs.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×