Real með mikil­vægan sigur, City með fullt hús og öll úr­slit kvöldsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Madrídingar fagna marki í kvöld.
Madrídingar fagna marki í kvöld. Oscar J. Barroso/Europa Press Sports/Getty Images)

Real Madrid vann lífs nauðsynlegan sigur á Inter, Bayern Munchen afgreiddi Salzburg undir lokin og Manchester City er með fullt hús eftir sigur á Olympiakos. Þetta var á meðal úrslita í Meistaradeildinni í kvöld.

Það var alvöru leikur á Spáni þar sem Real Madrid vann 3-2 sigur á Inter. Bæði lið hafa farið illa af stað í riðlinum og þurftu nauðsynlega á þremur stigum að halda.

Real komst í 2-0 í fyrri hálfleik með mörkum Karim Benzema og Sergio Ramos en Lautaro Martinez minnkaði muninn fyrir hlé. Ivan Perisic jafnaði svo á 68. mínútu en Rodrygo skoraði sigurmarkið á 80. mínútu.

Gladbach er því með fimm stig, Real og Shakhtar með fjögur en Inter á botni riðilsins með tvö stig.

Bayern München vann torsóttann sigur á Salzburg í Austurríki. Lokatölur 2-6. Austurríkismennirnir komust yfir en mark úr vítaspyrnu frá Robert Lewandowski og sjálfsmark Rasmus Kristensen kom Bayern yfir fyrir hlé.

Masaya Okugawa jafnaði þó fyrir Salzburg á 66. mínútu en Jerome Boateng kom Bayern í forystu ellefu mínútum fyrir leikslok áður en Leroy Sane bætti við fjórða markinu.

Bæjarar voru ekki hættir því Lewandowski skoraði fimmta markið á 88. mínútu og Lucas Hernandez bætti við sjötta markinu ó uppbótartíma . Bayern er með fullt hús í A-riðlinum, Atletico Madrid fjögur stig, Lokomotiv tvö en Salzburg eitt.

Manchester City er einnig með fullt hús í C-riðlinum. Þeir unnu 3-0 sigur á Olympiakos í kvöld. Ferran Torres skoraði fyrra markið á tólftu mínútu og Gabriel Jesus tvöfaldaði forystuna á 81. mínútu með laglegri afgreiðslu. Joao Cancelo skoraði þriðja markið.

Í hinum leik C-riðilsins unnu Porto öruggan sigur á Marseille. Lokatölur 3-0. Moussa Marega, Sergio Oliveira og Luis Diaz skoruðu mörk Porto en Dimitri Payet klúðraði víti fyrir Marseille í stöðunni 1-0. City er efst í riðlinum með níu stig, Porto í öðru sætinu með sex, Olympiakos með þrjú en Marseille án stiga.

Mikael Anderson var ónotaður varamaður er Midtjylland tapaði 2-1 fyrir Ajax á heimavelli. Midtjylland lenti 2-0 undir eftir tólf mínútna leik en þeir náðu svo að klóra í bakkann. Midtjylland er án stiga á botni riðilsins.

Úrslit kvöldsins í Meistaradeildinni:

A-riðill:

Lokomotiv Moskva - Atletico Madrid 1-1

Salzburg - Bayern Munchen 2-6

B-riðill:

Shaktar - Borussia Mönchengladbach 0-6

Real Madrid - Inter 3-2

C-riðill:

Porto - Marseille 3-0

Man. City - Olympiakos 3-0

D-riðill:

Atalanta - Liverpool 0-5

FC Midtjylland - Ajax 1-2

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira