Viðskipti erlent

Svona ætlar Twitter að bregðast við ó­tíma­bærum siguryfir­lýsingum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Umræddir merkimiðar.
Umræddir merkimiðar. Twitter

Samfélagsmiðilinn Twitter hefur greint frá því hvernig brugðist verður við því muni einhver frambjóðandi í forseta- og þingkosningunum í Bandaríkin lýsa yfir sigri áður en skýrar niðurstöður þess efnis liggi fyrir.

Einkum hefur verið horft til Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í þessum efnum. Fjölmiðlar þar í landi hafa sagt frá því að forsetinn hafi fullyrt við nánustu bandamenn sín að hann ætli sér að lýsa yfir sigri í nótt ef útlit verður fyrir að hann sé með forskot. 

Varað hefur verið við því að fyrstu tölur sem berist úr kjörkössum geti verið villandi, sökum gríðarlegs fjölda póstatkvæða. Ríki Bandaríkjanna hafa mismunandi lög og reglur um hvenær megi byrja að telja slík atkvæði, og því geti fyrstu niðurstöður breyst eftir því sem líður á nóttina.

Twitter hefur gefið út að það muni bregðast við ótímabærum siguryfirlýsingum í forsetakosningunum og öðrum kosningum sem haldnar eru í Bandaríkjunum í dag þar sem mjótt er á mununum og erfitt að skera úr um hver hafi betur án þess að mikill meirihluti atkvæða hafi verið talinn. 

Reglurnar gilda meðal annars um framjóðendurnar tvo, Trump og Joe Biden, og framboð þeirra. Reglurnar gilda einnig um tíst vinsælla stuðningsmanna frambjóðendanna, nái viðkomandi tíst mikilli útbreiðslu.

Þannig hyggst Twitter merkja slík tíst sérstaklega með merkimiða þannig að notendur geti séð að umrætt tíst sé annað hvort villandi eða standist ekki skoðun, en umrædda merkimiða má sjá á myndinni efst í fréttinni.

Þá munu notendur sem reyna að breiða út tíst sem Twitter hefur merkt sérstaklega á þann hátt fá aðvörun um að umrætt tíst hafi verið merkt og hvatningu um að kynna sér málin betur.

Twitter hefur einnig gefið út að til þess að samfélagsmiðilinn taki mark á siguryfirlýsingu frambjóðanda þurfi embættismaður kjörstjórnar að hafa lýst því að viðkomandi frambjóðandi hafi unnið í viðkomandi ríki, eða tveir af sjö nafngreindum fjölmiðlum hafi lýst því yfir að viðkomandi frambjóðandi hafi borið sigur úr býtum.


Tengdar fréttir

Vaktin: Örlagadagur í Bandaríkjunum

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér 46. forseta landsins. Mun Repúblikaninn og sitjandi forsetinn Donald Trump halda embættinu eða tekst Demókratanum og fyrrverandi varaforsetanum Joe Biden að snúa aftur á kunnuglegar slóðir?

Biden tryggði sér öll at­kvæðin í Dix­vil­le Notch

Nú liggur fyrir hvernig íbúar í Dixville Notch í New Hampshire greiddu atkvæði í bandarísku forsetakosningunum sem fram fara í dag. Bærinn hefur lengi stært sig af því að vera fyrstur til að loka kjörstað og kynna niðurstöðuna, en einungis eru þar nú fimm manns á kjörskrá.

Biden tryggði sér öll at­kvæðin í Dix­vil­le Notch

Nú liggur fyrir hvernig íbúar í Dixville Notch í New Hampshire greiddu atkvæði í bandarísku forsetakosningunum sem fram fara í dag. Bærinn hefur lengi stært sig af því að vera fyrstur til að loka kjörstað og kynna niðurstöðuna, en einungis eru þar nú fimm manns á kjörskrá.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×