Viðskipti innlent

Hefur dregið úr flug­fram­boði um 30 prósent á síðustu dögum

Atli Ísleifsson skrifar
Óvissa ríkir um háannatíma sumarsins en félagið gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25 prósent miðað við það sem áður hafði verið kynnt.
Óvissa ríkir um háannatíma sumarsins en félagið gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25 prósent miðað við það sem áður hafði verið kynnt. Vísir/vilhelm

Icelandair hefur á síðustu dögum dregið úr flugframboði sínu um allt að 30 prósent. Óvissa ríkir um háannatíma sumarsins en félagið gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25 prósent miðað við það sem áður hafði verið kynnt.

Þetta kemur fram í tilkynningu fram Icelandair Group sendi á Kauphöllina rétt í þessu. Er það farið yfir stöðuna í tengslum við útbreiðslu kórónuveirunnar. Félagið segir ljóst að faraldurinn muni hafa neikvæð áhrif á sjóðstreymi félagsins og unnið sé að því að lágmarka þau áhrif, meðal annars með því að draga úr flugframboði og vinna með stéttarfélögum til að lækka launakostnað verulega

Í tilkynningunni segir að útbreiðsla COVID-19 veirunnar og yfirgripsmiklar ferðatakmarkanir hafi haft veruleg áhrif á eftirspurn á mörkuðum Icelandair og eru að hafa neikvæð áhrif á bókunarstöðu félagsins.

„Á síðustu dögum hefur félagið dregið úr flugframboði um allt að 30%. Líklegt er að dregið verði enn frekar úr flugframboði á meðan ferðatakmarkanir eru í gildi og staðan getur breyst hratt. Félagið heldur áfram að fylgjast grannt með stöðu mála og hefur gripið til ýmissa aðgerða í samráði við heilbrigðisyfirvöld til að tryggja heilsu og öryggi starfsfólks og farþega.

Óvissa ríkir um háannatíma sumarsins en félagið gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25% miðað við það sem áður hafði verið kynnt. Félagið mun þó leggja áherslu á að viðhalda þeim sveigjanleika sem þarf til að geta brugðist hratt við eftir því hvernig eftirspurn þróast.

Fjárhagsleg áhrif vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar á starfsemi félagsins eru enn óviss. Lausafjárstaða félagsins nam rúmum 39 milljörðum króna (301,6 milljónum dala) í árslok 2019 og er á svipuðum stað í dag. Ljóst að útbreiðsla COVID-19 veirunnar muni hafa neikvæð áhrif á sjóðstreymi félagsins en unnið er að því að lágmarka þau áhrif, meðal annars með því að draga úr flugframboði og vinna með stéttarfélögum til að lækka launakostnað verulega,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Icelandair hyggst ekki leita á náðir ríkisins

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að félagið teikni nú upp leiðir til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin vegna ferðabanns Bandaríkjastjórnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×