Innlent

Starfs­maður Veður­stofunnar með veiruna

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ekki er talin hætta á að þjónusta Veðurstofunnar raskist vegna smitsins.
Ekki er talin hætta á að þjónusta Veðurstofunnar raskist vegna smitsins. Vísir

Starfsmaður Veðurstofu Íslands greindist með Covid-19 seint síðastliðið föstudagskvöld. Þetta staðfesti Haukur Hauksson, samskiptastjóri Veðurstofunnar, í samtali við fréttastofu nú síðdegis.

Nokkrir starfsmenn stofnunarinnar sem höfðu umgengist viðkomandi hafa verið sendir í sóttkví eftir tilmælum rakningateymis almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og verða prófaðir fyrir veirunni næstkomandi þriðjudag.

Í samtali við fréttastofu vildi Haukur ekki greina frá fjölda þeirra starfsmanna sem eru í sóttkví, en sagði þó að málið yrði ekki til þess að raska þjónustu Veðurstofunnar. Um er að ræða fyrsta smitið sem greinist í starfsmannahópi stofnunarinnar.

„Við erum með viðbragðsáætlanir gegn svona farsóttum, ekkert endilega bara Covid, í okkar áætlunum til þess að vernda þjónustuna. Við erum bara að vinna eftir því og það gengur vel,“ segir Haukur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×