Viðskipti innlent

Afkomuspá Icelandair Group tekin úr gildi vegna kórónuveirunnar

Andri Eysteinsson skrifar
Afkomuspáin var gefin út 6.febrúar síðastliðinn.
Afkomuspáin var gefin út 6.febrúar síðastliðinn. Vísir/Vilhelm

Kórónuveiran hefur haft neikvæð áhrif á eftirspurn eftir ferðalögum á ákvæðin svæði í heiminum. Staðan skipar aukna óvissu þegar kemur að áætlaðri rekstrarniðurstöðu Icelandair Group fyrir árið 2020.

Vegna óvissunnar hefur félagið tekið afkomuspá sem gefin var út 6. febrúar síðastliðinn úr gildi og telja stjórnendur ekki mögulegt að gefa út áreiðanlega afkomuspá á þessum tímapunkti. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair Group til Kauphallarinnar í dag.

Kórónuveiran hefur breiðst út um víða veröld á undanförnum vikum og greindist fyrsta tilvik hennar hér á landi í síðustu viku. Um var að ræða mann sem hafði verið á skíðum á Ítalíu en stór hluti Norður-Ítalíu er skilgreindur sem sérstakt hættusvæði vegna möguleika á smiti.

Icelandair gripið til ýmissa ráðstafana

„Útbreiðsla COVID-19 veirunnar og viðbrögð við henni eru að hafa áhrif á ferðahegðun á okkar markaðssvæði. Vegna þess erum við að greina hugsanlegar sviðsmyndir og móta aðgerðir til að draga úr þeim áhrifum sem þessi þróun kann að hafa á starfsemi félagsins,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.

„Öll áhersla verður lögð á að lágmarka áhrif á viðskiptavini okkar en ef mótvægisaðgerðir koma til með að hafa áhrif á flugáætlun, munum við upplýsa um það um leið og slíkar ákvarðanir liggja fyrir. Ég legg áherslu á að öryggi og velferð farþega og starfsfólks okkar er ávallt í fyrirrúmi.“

Í tilkynningu frá Icelandair Group segir að flugfélagið Icelandair hafi gripið til ýmissa ráðstafana og aukið viðbragðsgetu til þess að geta brugðist við útbreiðslu veirunnar. Félagið sé í samskiptum við sóttvarnarlækni, landlæknisembættið sem og alþjóðlegu læknaþjónustuna Medaire sem sérhæfir sig í lækningum og forvörnum um borð í flugvélum.

Þá hefur verið gripið til varúðarráðstafana með viðbótarbúnaði í vélum félagsins, þar á meðal sótthreinsiefni, andlitsgrímur og hanskar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×