Innlent

Með kanna­bis­fræ í tösku og kókaín í vasanum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Nokkrir ökumenn voru teknir úr umferð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina.
Nokkrir ökumenn voru teknir úr umferð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Vísir/vilhelm

Ökumaður sem stöðvaður var í umdæmi lögreglu á Suðurnesjum um helgina reyndist með kannabisfræ í tösku. Farþegi í bílnum var jafnframt með kókaín í úlpuvasa sínum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu á Suðurnesjum.

Ökumaðurinn var á meðal nokkurra sem teknir voru úr umferð í umdæminu um helgina. Annar ökumaður, grunaður um fíkniefnaakstur, ók jafnframt sviptur ökuréttindum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×