Körfubolti

Lakers rúllaði yfir Golden Sta­te án LeBron | Mynd­bönd

Anton Ingi Leifsson skrifar
LeBron var líflegur á bekknum í nótt.
LeBron var líflegur á bekknum í nótt. vísir/getty

Los Angeles Lakers lenti ekki í miklum vandræðum með Golden State er liðin mættust í Kaliforníu í nótt. Lokatölur urðu 30 stiga sigur Lakers, 116-86.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfeik og munaði einungis tveimur stigum á liðunum í hálfleik. Þriðja leikhlutann vann Lakers með 23 stigum og gerði út um leikinn.

Anthony Davis var stigahæstur í liði Lakers með 23 stig en liðið var án LeBron James. Eric Paschall gerði 23 stig fyrir Golden State.













Oklahoma City hefur unnið fimm leiki í röð en fimmti sigur þeirra í röð kom gegn Sacramento á heimavelli. Oklahoma hafði betur 112-108 en Danilo Gallinari gerði 24 stig fyrir Oklahoma.

Öll úrslit næturinnar:

New York - Philadelphia 106-115

Portland - Indiana 100-106

Sacramento - Oklahoma City 108-112

LA Lakers - Golden State 116-86

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×