Tvö mörk tekin af Bologna þegar Lazio komst á toppinn í Serie A Ísak Hallmundarson skrifar 29. febrúar 2020 16:00 Luis Alberto og Ciro Immobile fagna vísir/getty
Lazio er komið á toppinn í ítölsku úrvalsdeildinni eftir 2-0 sigur á Bologna á heimavelli. Tvö mörk voru tekin af Bologna í seinni hálfleik með aðstoð VAR. Luis Alberto skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu eftir stoðsendingu frá Ciro Immobile. Strax þremur mínútum síðar bættu Lazio við öðru marki, þá var það Joaquín Correa sem skoraði eftir stoðsendingu frá Luis Alberto. Staðan í hálfleik var 2-0. Bologna höfðu ekki heppnina með sér í seinni hálfleik. Þeir virtust vera að minnka muninn í 2-1 þegar Stefano Denswil skoraði, en eftir að markið var skoðað í VAR, var það tekið af vegna hendi í aðdraganda marksins. Aftur virtust Bologna vera að minnka muninn þegar Takehiro Tomiyasu kom boltanum í netið á 67. mínútu, en aftur var myndbandsdómgæslan á ferðinni og dæmdi markið ógilt. Mörkin urðu ekki fleiri og lokatölur 2-0 sigur heimamanna í Lazio sem fara með sigrinum upp fyrir Juventus á topp deildarinnar. Juventus á þó leik til góða gegn Internazionale, en þeim leik var í dag frestað fram í maí. Sveinn Aron Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekknum þegar Spezia laut í lægra haldi gegn toppliði Benevento í ítölsku b-deildinni. Lokatölur 3-1 fyrir Benevento, en Spezia spilaði manni færri frá 30. mínútu.
Ítalski boltinn Tengdar fréttir Stórleik Juventus og Inter Milan frestað vegna kórónuveirunnar Stórleikur helgarinnar í ítalska boltanum átti upprunalega að fara fram fyrir luktum dyrum. Honum hefur nú verið frestað. 29. febrúar 2020 12:15 Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira
Stórleik Juventus og Inter Milan frestað vegna kórónuveirunnar Stórleikur helgarinnar í ítalska boltanum átti upprunalega að fara fram fyrir luktum dyrum. Honum hefur nú verið frestað. 29. febrúar 2020 12:15