Njarðvíkingar bæta við sig tveimur Íslandsmeistaraþjálfurum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2020 17:00 Friðrik Pétur Ragnarsson og Sverrir Þór Sverrisson eru aftur farnir að þjálfa í Ljónagryjfunni í NJarðvík. Mynd/Njarðvík
Njarðvíkingar segja frá því á heimasíðu sinni í dag að elstu yngri flokkar Njarðvíkur hafa fengið öfluga þjálfara fyrir átökin í vetur því þeir Friðrik Pétur Ragnarsson og Sverrir Þór Sverrisson munu stýra elstu yngri flokkum félagsins á komandi tímabili. Upphaflega stóð til að Friðrik Ingi Rúnarsson, annar tveggja aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla, yrði með elstu yngri flokkana karlamegin en ekki gat orðið að því í vetur og því verður Friðrik Ingi aðeins með meistaraflokkinn í vetur ásamt Einari Árna Jóhannssyni og Halldóri Karlssyni. Njarðvíkingar leituðu til tveggja reynslumikilla þjálfara sem þekkja það líka að búa til frábær lið í Ljónagryfjunni. Friðrik Pétur Ragnarsson gerði karlalið Njarðvíkur tvívegis að Íslandsmeisturum, fyrst sem spilandi þjálfari 2011 með Teiti Örlygssyni og svo sem eini aðalþjálfarinn vorið 2002. Sverrir Þór Sverrisson gerði kvennalið Njarðvíkur að tvöföldum meisturum tímabilið 2011-12 en Sverrir hefur einnig gert kvennalið Keflavíkur og karlalið Grindavíkur að Íslandsmeisturum. Sverrir Þór mun taka við stúlknaflokki og 10. flokki kvenna og þjálfa þá ásamt Lárusi Inga Magnússyni en Friðrik Pétur mun taka við unglinga- og drengjaflokki. Lárusi Inga Magnússon mun einnig aðstoða Rúnar Inga Erlingsson sem þjálfar meistaraflokk kvenna hjá Njarðvík á komandi tímabili.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira