Vísindaleg vínsmökkun í Vogue fyrir heimilið Vogue fyrir heimilið kynnir 19. febrúar 2020 08:45 Ólafur Örn Ólafsson leiðir fólk í allan sannleikann um rétta vínglasið í versluninni Vogue á morgun.
Eitt mesta úrval landsins af vínglösum frá austuríska framleiðandanum Riedel er að finna í versluninni Vogue fyrir heimilið. Riedel sérhæfir sig í hönnun kristalsglasa sem framkalla besta bragðið og hámarka upplifunina af hverju víni fyrir sig. Glasadagar standa nú yfir í versluninni og á fimmtudaginn 20. febrúar verður vínsmökkun og sérlegur ráðgjafi á staðnum sem aðstoðar viðskiptivini við val á glösum. „Riedel hefur unnið mikla rannsóknarvinnu á því hvaða glas hentar hvaða víni best. Fólk er kannski ekki að spá mikið í þessa hluti dags daglega en staðreyndin er sú að lagið á glasinu ýtir undir bragðið sem vínframleiðandinn er að ná fram úr þrúgunni. Þetta eru alvöru vísindi og ég mun leiða fólk í allan sannleikann um þessi mál,“ segir Ólafur Örn Ólafsson, framreiðslumaður og rektor vínskóla Tíu sopa, en hann mun standa vaktina í versluninni á morgun, fimmtudag milli klukkan 16 og 18.Belgvíð glös og bragðlaukarÓlafur veit hvað hann syngur þegar kemur að mat og drykk og þá kannski sérstaklega drykk en hann hefur stúderað vínfræðin í áratugi. „Ég spekúlera gríðarlega mikið í vínum og má segja að ég hafi hallað mér að flöskunni allt mitt líf,“ segir hann sposkur. „Auðvitað má fólk drekka það sem það vill eins og það vill, úr tannburstaglasi þess vegna en, það er búið að rannsaka þessi mál í þaula og sýna fram á að lögunin á glasinu skiptir heilmiklu máli. Til dæmis hvernig uppgufun af víninu ferðast inni í glasinu og líka hvar vínið lendir í munninum þegar fólk tekur sopann en við finnum mismunandi bragð á mismunandi svæðum á tungunni. Belgvíð glös með litlu opi gera það til dæmis að verkum að fólk þarf að halla höfðinu mikið aftur til að taka sopa og þá fer innihaldið aftarlega í munninn. Ég verð með allskonar vín tiltæk og gef fólki að smakka úr mismunandi glösum til að bera saman,“ útskýrir Ólafur.Gerir gott vín betraRiedel vínglös þykja eftirlæti vínþjóna um allan heim sem taka starf sitt alvarlega og vilja bjóða gestum sínum upp á það besta. Yfir 40 mismunandi tegundir af Riedel vínglösum er að finna í hillum Vogue fyrir heimilið sem getur verið frumskógur fyrir óreynda. Þá kemur Ólafur til bjargar. „Ég hef marga fjöruna sopið í vínmálunum og veit að þegar fólk er búið að splæsa í dýrt og vandað vín verður það ennþá betra í réttu glasi. Það eru einnig til almennar týpur af Riedel glösum sem hægt er að byrja á og svo verður þetta þróaðra þegar það er komin meiri alvara í þetta hjá fólki. Það er auðvitað smá snobb í þessu líka sem er bara skemmtilegt.“Hvað endist flaskan lengi?Ólafur stendur fyrir tveggja tíma námskeiðum í vínsmökkun á Tíu sopum og þeir sem fá ekki nóg á fimmtudaginn í Vogue fyrir heimilið geta skráð sig. Við höldum tveggja tíma námskeið fyrir hópa og ef fólk er í leiðinlegum saumaklúbbi eða vinnustaðahóp sem þarf að hrista upp í eru þessi námskeið stórsniðug. Við fáum ótrúlega fjölbreyttar spurningar en sú algengasta er líklega sú hversu lengi vínflaska dugi eftir að hún er opnuð? Námskeiðin eru alltaf afar skemmtileg og ég lofa að vera líka skemmtilegur í Vogue Síðumúla 30 á fimmtudaginn milli klukkan 16 og 18,“ segir Ólafur.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Vogue fyrir heimilið.
Matur Mest lesið Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú Lífið Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Lífið „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Lífið „Veistu það Frosti, ég get ekki tekið þetta viðtal“ Lífið Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Lífið Fögnuðu heimkomu Nemo Lífið Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Lífið Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Lífið Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Lífið Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira