Körfubolti

Elvar Már heldur áfram að fara á kostum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elvar Már í landsleik síðasta sumar.
Elvar Már í landsleik síðasta sumar. vísir/getty

Elvar Már Friðriksson heldur áfram að vera einn besti leikmaður sænska boltans en hann átti enn einn stórleikinn í kvöld.

Elvar spilaði virkilega vel í öruggum sigri toppliðs Borås, 116-92, er liðið mætti Djurgården á heimavelli í kvöld.

Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrstu tveimur leikhlutunum en Borås keyrði svo yfir gestina í síðari hálfleik.

Elvar Már Friðriksson skoraði 21 stig, gaf tíu stoðsendingar og tók fimm fráköst en hann var næst framlagshæsti leikmaður Borås í leiknum.

Borås er með átta stiga forskot á toppi deildarinnar en BC Lulea á þó tvo leiki til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×