Körfubolti

Tryggvi fór á kostum í Meistara­deildar­sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tryggvi var frábær í kvöld.
Tryggvi var frábær í kvöld. vísir/getty

Tryggvi Snær Hlinason fór á kostum er Zaragoza vann tveggja stiga sigur, 93-91, á Happy Casa Brindisi í Meistaradeildinni í körfubolta í kvöld.

Sigurkörfuna skoraði Dylan Ennis er tvær sekúndur voru eftir af leiknum.

Tryggvi Snær Hlinason var framlagshæstur í liði Zaragoza. Hann gerði 14 stig og tók níu fráköst en hann var með framlagsstig upp á 21.







Zaragoza er á toppi D-riðilsins með 24 stig eftir tíu sigra í fjórtán leikjum en Brindisi er á botni riðilsins með einungs fimm sigra í nítján leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×