Markalaust í toppslagnum í Þýskalandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Robert Lewandowski tókst ekki að skora, aldrei þessu vant.
Robert Lewandowski tókst ekki að skora, aldrei þessu vant. vísir/getty

Bayern München og RB Leipzig gerðu markalaust jafntefli í uppgjöri toppliða þýsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Bayern er því enn með eins stigs forskot á Leipzig á toppnum. Borussia Dortmund og Borussia Mönchengladbach eru svo skammt undan.

Heimamenn voru miklu meira með boltann en vörn gestanna var öflug.

Bayern fékk vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks en dómnum var breytt eftir að atvikið var skoðað á myndbandi.

Timo Werner og Marcel Sabitzer fengu bestu færi Leipzig en Leon Goretzka komst næst því að skora fyrir Bayern.

Leipzig hefur ekki unnið í síðustu þremur deildarleikjum sínum; gert tvö jafntefli og tapað einum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira