Viðskipti erlent

Íslendingar tóku þátt í greftri lengstu og dýpstu bílaganga heims undir sjó

Kristján Már Unnarsson skrifar
Göngin eru með tveir akreinar í hvora átt og með bláan gervihimin á löngum köflum.
Göngin eru með tveir akreinar í hvora átt og með bláan gervihimin á löngum köflum. Mynd/Statens Vegvesen, Noregi.

Norðmenn hafa tekið í notkun lengstu og dýpstu neðansjávarbílagöng heims. Tugir Íslendinga unnu að verkefninu á vegum ÍAV, en systurfélag þess var aðalverktaki. Fjallað var um göngin í fréttum Stöðvar 2. 

Göngin liggja undir Boknafjörð milli Stafangurs og Sólbakka í Ryfylki og voru opnuð fyrir umferð daginn fyrir gamlársdag, þann 30. desember. Gervihiminn er hafður í loftinu en göngin eru 14,4 kílómetrar á lengd og ná 292 metra undir yfirborð sjávar, sem gerir þau að lengstu og dýpstu bílagöngum heims undir sjó.

Til samanburðar ná Hvalfjarðargöng 165 metra undir yfirborð og eru 5,7 kílómetra löng.

Við gangamunna Sólbakkamegin. Þetta eru í raun tvenn samliggjandi göng.Mynd/Statens Vegvesen.

Ryfylkisgöngin eru fjögurra akreina, með tvær akreinar í hvora átt, og kostuðu 8,1 milljarð norskra króna, andvirði 112 milljarða íslenskra króna. Vegtollum er ætlað að greiða þrjá fjórðu hluta kostnaðar en veggjald fyrir staka ferð fólksbíls er um 1.600 krónur íslenskar.

Íslendingar áttu stóran þátt í gerð ganganna undir stjórn Gísla Þórs Guðjónssonar, þáverandi staðarstjóra ÍAV, en systurfélag Íslenskra aðalverktaka í Noregi, Marti IAV, var aðalverktaki. Framkvæmdir hófust árið 2012 og unnu tugir Íslendinga að gangagerðinni framan af en þeim fækkaði eftir að íslenski markaðurinn fór að rétta úr kútnum, að sögn Sigurðar Ragnarssonar, forstjóra ÍAV. Nokkrir Íslendingar unnu þó að verkinu allt til loka.

Því var fagnað í desember 2015 þegar göngin náðu þeim áfanga að verða dýpstu neðansjávargöng heims, 292 metrar undir sjávarmáli. Þessi mynd var þá tekin þegar Gísli Þór Guðjónsson, staðarstjóri ÍAV, og Gunnar Eiterjord frá norsku Vegagerðinni, Statens Vegvesen, skáluðu í óáfengu kampavíni fyrir tímamótunum.Mynd/Statens Vegvesen.

Norðmenn eru raunar að grafa önnur og ennþá lengri og dýpri neðansjávargöng, Rogfastgöngin, sem verða 27 kílómetra löng og 392 metra djúp. Þau verða undir Boknafjörð utanverðan og tengja Stafangur við eyjarnar Kvitsey og Bokn. Þau eiga að verða tilbúin árið 2026.

Sjá hér nánar: Norðmenn ætla að grafa lengstu og dýpstu neðansjávarjarðgöng heims fyrir bílaumferð

Með þeim verður komið á ferjulausri vegtengingu milli Stafangurs og Haugasunds, sem er liður í því verkefni stjórnvalda að gera þjóðveginn um vesturströnd Noregs, E-39, ferjulausan. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Norðmenn halda áfram að undirbúa skipagöng

Ríkisstjórnarflokkarnir í Noregi hafa sæst á að bæta andvirði tæplega sjötíu milljónir íslenskra króna inn í fjárlagafrumvarp næsta árs til að halda áfram undirbúningi skipaganga við Stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×