Shakhtar örugglega í undanúrslitin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Shakhtar Donetsk átti greiða leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar.
Shakhtar Donetsk átti greiða leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar. getty/Bernd Thissen

Shakhtar Donetsk vann öruggan sigur á Basel, 4-1, í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Leikurinn fór fram í Gelsenkirchen.

Shakhtar mætir Inter í undanúrslitunum á mánudaginn kemur. Leikið verður í Düsseldorf.

Úkraínsku meistararnir voru mun sterkari aðilinn í leiknum og sigur þeirra var sanngjarn.

Junior Moraes kom Shakhtar yfir með skalla eftir hornspyrnu Marlos strax á 2. mínútu. Taison tvöfaldaði forskotið á 22. mínútu.

Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka skoraði Alan Patrick þriðja mark Shakhtar úr vítaspyrnu. Dodo skoraði svo fjórða markið eftir góða skyndisókn tveimur mínútum fyrir leikslok.

Ricky van Wolfswinkel skoraði sárabótarmark fyrir Basel þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur 4-1, Shakhtar í vil.

Sýnt verður beint frá öllum leikjunum sem eftir eru í Evrópudeildinni á Stöð 2 Sport. Keppni lýkur með úrslitaleiknum í Köln 21. ágúst. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira