Golf

Klúðraði algjörri draumastöðu þegar hún gat unnið fyrsta sigur sinn í 27 mánuði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Danielle Kang þóttist vera að taka sjálfu þegar hún fagnaði sigri sínum í gær.
Danielle Kang þóttist vera að taka sjálfu þegar hún fagnaði sigri sínum í gær. Getty/ Gregory Shamus

Bandaríski kylfingurinn Danielle Kang vann annað mótið í röð á LPGA mótaröðinni í golfi í gær þegar hún tryggði sér dramatískan sigur á Marathon Classic golfmótinu í Ohio fylki. Viku áður hafði hún unnið LPGA Drive On mótið.

Stærsta fréttin frá mótinu verður þó alltaf klúður kollega Danielle Kang fremur en frábær spilamennska hennar sjálfrar.

Danielle Kang var fimm höggum á eftir hinn nýsjálensku Lydia Ko þegar aðeins sex holur voru eftir. Það þurfti þó ekki einhverja stórkostlega spilamennsku hjá Danielle Kang til að tryggja sér sigurinn.

Ástæðan var algjört hrun hjá Lydiu Ko sem tapaði hverju högginu á fætur öðru á lokaholunum. Ko kórónaði síðan klúðrið með því að frá tvöfaldan skolla á átjándu holunni. Hún fékk pútt til að tryggja sér umspil en klúðraði því líka.

Það þýddi að Danielle Kang vann Marathon Classic golfmótið með einu höggi þrátt fyrir að ná bara að pari á fjórum síðustu holunum sínum. Fuglar Kang á þrettándu og fjórtándu voru nóg til að skila henni sigrinum. Kang hefur nú unnið fimm LPGA-mót á ferlinum.

„Ég hef verið að spila gott og stöðugt golf bæði fyrir og eftir sóttkví. Ég held að aðalástæðan fyrir því er að ég hef ekki einbeitt mér að öðru en að því sem ég bætt mig í. Við höfum alltaf möguleika á að bæta okkur og það er það fallega við golfið,“ sagði Danielle Kang.

Það sem gerði þetta klúður Ko enn stærra í augum margra var að hún var þarna á góðri leið með því að vinna sitt fyrsta mót í 27 mánuði.

Lydia Ko sló í gegn mjög ung og náði efsta sæti á heimslistanum þegar hún var aðeins 17 ára og 9 mánaða. Hún var einnig sú yngsta til að vinna risamót eða aðeins átján ára og rúmlega fjögurra mánaða. Nú er hún ekki inn á topp fimmtíu eftir mörg mögur ár.

Lydia Ko hefur ekki unnið golfmót síðan í lok apríl 2018 og það er eini sigur hennar síðan á Marathon Classic mótinu fyrir fjórum árum síðan.

„Ég held að þetta hafi verið guð að segja mér að þetta var ekki minn dagur,“ sagði Lydia Ko sem hefur gert lítið að viti síðan hún rak þjálfara sinn. Hann var allt annað en sáttur og þá sérstaklega með framkomu foreldra hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×