Innlent

Svona var 93. upp­­­lýsinga­fundurinn vegna kórónuveirunnar

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Víðir, Þórólfur og Alma verða á fundinum.
Víðir, Þórólfur og Alma verða á fundinum. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boðuðu til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14:00 í dag. Fundurinn var í beinni útsendingu hér á Vísi, Stöð 2 Vísi og á Bylgjunni. Sjá má upptöku frá fundinum í spilaranum hér að neðan,

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Alma D. Möller, landlæknir fóru yfir stöðu mála, varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi, ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Átta ný innanlandssmit greindust í gær og eitt á landamærunum. Þá eru 80 í einangrun og á sjöunda hundrað manns í sóttkví.

Líkt og áður segir má útsendingu frá fundinum í spilaranum hér að ofan og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir. Þá var hann í beinni útsendingu á Bylgjunni og í beinni textalýsingu í vaktinni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×