Innlent

Björgunarsveit kölluð út eftir að dreng hafði rekið út á Kleifarvatn

Andri Eysteinsson skrifar
Lið björgunarsveitarinnar Þorbjarnar var kallað til Kleifarvatns í dag.
Lið björgunarsveitarinnar Þorbjarnar var kallað til Kleifarvatns í dag. Facebook/Þorbjörn

Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík í dag eftir að tilkynning barst um að drengur hafi lent í vandræðum á Kleifarvatni á Reykjanesskaga.

Hafði drenginn rekið út á vatnið í uppblásnu rekaldi eftir því sem fram kemur á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar. Sveitin hélt raklétt af stað í verkefnið og sendi af stað tvo slöngubáta ásamt mannskap og búnaði.

Að björguninni kom lið Þorbjarnar, björgunarsveit frá Hafnarfirði og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

Í tilkynningu Þorbjarnar segir að vindar hafi breyst þannig að drenginn hafi rekið aftur að landi þar sem hann komst heill á húfi í fang foreldra sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×