Þremur gíslum sleppt úr haldi í gíslatöku í Úkraínu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. júlí 2020 19:00 Þremur gíslum var sleppt úr haldi þar sem vopnaður maður heldur farþegum lítillar rútu í gíslingu í Úkraínu. EPA-EFE/MARKIIAN LYSEIKO
Þremur gíslum hefur verið sleppt lausum í gíslatöku í borginni Lutsk í vestanverðri Úkraínu eftir margra klukkutíma viðræður við gíslatökumanninn. Þremenningarnir eru sagðir óhultir. Maðurinn sem heldur hópi farþega lítillar rútu í gíslingu er sagður krefjast þess að hátt settir stjórnmálamenn lýsi því yfir að þeir séu „hryðjuverkamenn.“ Innanríkisráðherra Úkraínu, Arsen Avakov, leiðir viðræðurnar við manninn sem er sagður heita Maksym Kryvosh og er 44 ára gamall Rússi. Avakov sagði í tilkynningu að gíslarnir séu ómeiddir og að yfirvöld vinni linnulaust að því að leysa úr málinu friðsamlega og fljótt. Þá sagði hann fyrri fréttir um að Kryvosh ætti við geðræn vandamál að stríða rangar. Kryvosh hefur verið dæmdur fyrir ýmsa glæpi og hefur hann setið tíu ár í fangelsi fyrir fjársvik, rán og ólögleg vopn. Maðurinn skaut fyrr í dag á lögregludróna út um rúðu á rútunni og kastaði handsprengju sem sprakk ekki, að sögn fréttastofu AP. Þá er hann sagður halda því fram að hann hafi komið fyrir sprengju á opinberum stað í borginni sem hann gæti sprengt með fjarstýringu. Hluti miðborgar Lutsk hefur verið girt af vegna umsátursins og íbúum verið sagt að halda sig heima eða á vinnustöðum sínum.
Úkraína Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira