Viðskipti erlent

Deutsche Bank sektaður vegna tengsla við Ep­stein

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Jeffrey Epstein var í viðskiptum við Deutsche Bank á árunum 2013 til 2018. Bankinn segist sjá eftir því að hafa tekið við viðskiptum hans.
Jeffrey Epstein var í viðskiptum við Deutsche Bank á árunum 2013 til 2018. Bankinn segist sjá eftir því að hafa tekið við viðskiptum hans. EPA-EFE/JASON SZENES

Deutsche Bank, einn stærsti banki heims, hefur verið sektaður um 150 milljónir Bandaríkjadala, eða um 21 milljarð íslenskra króna fyrir að hafa ekki haft nægilegt eftirlit með viðskiptum barnaníðingsins Jeffrey Epstein sem fóru fram í gegn um bankann. Eftirlitsaðilar í New York segja að bankinn hafi ekki sinnt eftirlitsskyldum sínum og hafi gengið frá hundruðum færslna fyrir auðkýfinginn.

Meðal færslnanna má finna greiðslur til rússneskra fyrirsæta og allt að 110 milljóna króna óútskýrða úttekta í seðlum. Í yfirlýsingu frá Deutsche segir að bankinn sjái gríðarlega eftir að hafa átt í viðskiptum við Epstein.

Fjármálaeftirlit New York segir að bankinn, sem var í viðskiptum við Epstein frá 2013 til 2018, hafi hjálpað honum að millifæra milljónir Bandaríkjadala, þar á meðal sjö milljónir dala sem fóru í að leysa úr lagalegum flækjum auðkýfingsins og 2,6 milljónir dala í greiðslum til kvenna meðal annars til að borga leigu þeirra, skólagjöld og önnur útgjöld.

Sektin er fyrsta aðgerðin sem gripið hefur verið til gegn fjármálastofnun vegna tengsla við Epstein. Forstjóri bankans, Christian Sewing, skrifaði í bréfi sem sent var innanhúss að það hafi verið grundvallarmistök hjá bankanum að samþykkja að taka við viðskiptum Epstein.


Tengdar fréttir

Fleiri saka Ep­stein um mis­notkun í kjöl­far hand­töku Maxwell

Fleiri hafa nú stigið fram og ásakað barnaníðinginn Jeffrey Epstein um að hafa brotið á sér. Ásakanirnar líta dagsins ljós í kjölfar þess að Ghislaine Maxwell, sem var nátengd Epstein áður en hann fyrirfór sér í fangaklefa sínum í ágúst í fyrra, var handtekin.

Vinkona Maxwell segir að Ghislaine muni ekkert gefa upp um Andrés

Andrés Bretaprins þarf engar áhyggjur að hafa af Ghislaine Maxwell hafi vinkona hennar, fjárfestirinn fyrrverandi Laura Goldman, rétt fyrir sér en hún segir að Maxwell myndi aldrei segja yfirvöldum neitt um samband prinsins við Jeffrey Epstein.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×