Óli Stef tekur skóna af hillunni og leikur með Val-U í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. mars 2020 14:00 Ólafur þjálfaði karlalið Vals tímabilið 2013-14. vísir/vilhelm
Ólafur Stefánsson hefur ákveðið að taka skóna af hillunni og leika með Val U gegn Fjölni U í Origo-höllinni í Grill 66 deildinni í kvöld. Ólafur spilar þar með syni sínum, Einari Þorsteini. Óskar Bjarni Óskarsson, aðstoðarþjálfari karla- og kvennaliða Vals, mun einnig spila leikinn í kvöld en sonur hans, Benedikt Gunnar, leikur með Val U. Ekki nóg með það heldur verður Dagur Sigurðsson á bekknum hjá Val U í kvöld. Hann mun þar aðstoða Anton Rúnarsson ásamt syni sínum, Sigurði. Þrjár Valsgoðsagnir úr 1973-árganginum taka því þátt í leiknum í kvöld með einum eða öðrum hætti. Síðasti handboltaleikurinn sem Ólafur, sem er 46 ára, lék var með Val í þriggja marka sigri á Akureyri, 26-23, í Olís-deild karla 31. október 2015. Ólafur skoraði sex mörk í leiknum sem var hans fyrsti hans í Valstreyjunni síðan liðið tryggði sér fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð með sigri á KA, 25-17, í Laugardalshöll 5. apríl 1996. Ólafur skoraði fjögur mörk í leiknum. Dagur var markahæstur Valsmanna í umræddum leik með níu mörk. Eftir tímabilið fóru þeir Ólafur til Wuppertal í Þýskalandi. Sonur Ólafur, Einar Þorsteinn, er 18 ára og þykir einnig liðtækur í körfubolta. Hann hefur skorað 27 mörk í 14 leikjum í Grill 66 deildinni í vetur. Valsmenn eru í 4. sæti hennar með 18 stig.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira