Fótbolti

Enginn Coutinho í leikmannahóp Bayern

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Coutinho í leik með Bayern.
Coutinho í leik með Bayern. EPA-EFE/FRIEDEMANN VOGEL

Hinn brasilíski Philippe Coutinho er hvergi sjáanlegur er Bayern Munich hefur leik aftur í þýsku úrvalsdeildinni eftir að deildinni var frestað í mars vegna kórónufaraldursins.

Coutinho, sem er á láni hjá Bæjurum frá stórliði Barcelona á Spáni, er að glíma við meiðsli á ökkla og er því ekki í leikmannahópi Bayern sem heimsækir Union Berlín núna klukkan 16:00 í dag. 

Coutinho hefur byrjað fimmtán deildarleiki hjá Þýskalandsmeisturunum á leiktíðinni og komið sjö sinnum inn af varamannabekknum. Þrátt fyrir að hafa skorað átta mörk og leggja upp önnur sex er ekki talið að Bayern muni kaupa hann þegar félagaskiptaglugginn opnar á ný.

Einhverjir orðrómar eru um að Maurico Pochettino vilji að Coutinho verði sín fyrstu kaup hjá nýju liði en sá argentíski er enn án félags eftir að hafa yfirgefið enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur fyrr á þessari leiktíð.

Hvort eitthvað af því verði á eftir að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×