Umdeildir Jersey-strákar Baldvin Þormóðsson skrifar 7. ágúst 2014 12:00 Myndin fylgir sögu ungu piltanna í sveitinni The Four Seasons en Eastwood leggur áherslu á myrkar hliðar frægðarinnar.
Nýjustu mynd Clints Eastwood verður frumsýnd á morgun en hún ber nafnið Jersey Boys. Myndin er byggð á samnefndum söngleik sem var frumsýndur árið 2005 á Broadway og hefur hlotið meðal annars fern Tony-verðlaun. Síðan þá hefur söngleikurinn farið sigurför um heiminn og notið gríðarlegra vinsælda. Myndin hefur hins vegar verið umdeild á meðal gagnrýnenda þrátt fyrir að hafa hlotið lof almennra áhorfenda, ekki síst þeirra sem þekkja vel til tónlistarinnar. Þeir ættu að vera margir, enda áttu bæði The Four Seasons og forsöngvari þeirra, Frankie Valli, marga stórsmelli á borð við Big Girls Don‘t Cry, Sherry, December 1963, My Eyes Adored You, Can‘t Take My Eyes Off You, Walk Like a Man og Rag Doll. Myndin greinir frá sögu ungu mannanna sem skipuðu sveitina The Four Seasons og urðu heimsfrægir í byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar. Um leið þurftu þeir að glíma bæði við það góða sem frægðinni fylgdi og það slæma. Ástæðan fyrir neikvæðu gagnrýninni sem myndin hefur þurft að sæta er meðal annars að gagnrýnendur eru á því máli að það hafi verið mistök að fá Clint Eastwood til þess að leikstýra myndinni. Myndin hefur mjög dimman blæ yfir sér, sem verður að teljast skrítið þar sem að hún er byggð á söngleik þar sem dans- og skemmtiatriði eru í fyrirrúmi. Í myndinni leggur Eastwood áherslu á persónulega sögu sveitarinnar, skilnaði, uppeldið og vafasama tengingu sveitarinnar við mafíuna. Hér er Dirty Harry að horfast í augu við sögu hljómsveitar sem kom fram á sjónarsviðið og sló fljótlega í gegn með grípandi lögum.
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Sjá meira