Kauphöllin áminnir Exista og sektar um 4 milljónir kr. 22. desember 2008 10:38
Kauphöllin hefur veitt Exista opinbera áminningu og fésekt vegna brota á ákvæðum reglna um viðskipti í Kauphöllinni. Sektin nemur 4 milljónum kr.. Í tilkynningu kauphallarinnar um málið segir að Exista hafi verið skylt að sækja um skráningu á nýju hlutafé í kjölfar þeirrar ákvörðunnar félagsins að hækka hlutaféið um 50 milljarða kr.. Um var að ræða þá ákvörðun stjórnar Exista frá 30. október að auka hlutaféið um þessa upphæð í skiptum fyrir einn milljarð hluta í Kvakki óskráðu eignarhaldsfélagi þeirra Bakkabræðra. Tilkynning um málið barst 8. Desember. Kaupþing óskaði í framhaldinu skýringa frá Exista um afhverju ofangreindir hlutir hefðu ekki verið teknir til viðskipta í samræmi við reglur kauphallarinnar. Eftir bréfaskipti telur Kauphöllin að Exista hafi verið skylt að sækja um skráningu á nýju hlutafé. „Ekkert er fram komið í málinu sem gefur til kynna að viðskipti hafi ekki getað hafist með hlutabréfin um leið og þau voru gefin út" segir í niðurstöðum kauphallarinnar. Því telur kauphöllin að Exista hafi brotið alvarlega gegn rétti fjárfesta á því að fá upplýsingar um útgefenda hlutabréfa og verðbréf sem tekin hafa verið til viðskipta. Þá átelur kauphöllin Lýð Guðmundsson stjórnarformann Exista fyrir að hafa í viðtali við Björn Inga Hrafnsson, í Markaðinum á Stöð 2 þann 25. október s.l., gefið upplýsingar um stöðu félagsins og kröfur þess á hendur íslensku bönkunum. Sökum viðtalsins fór kauphöllin fram á það við Exista að félagið birti upplýsingar um stöðu krafna á hendur bönkunum og fjárhagslega stöðu þess. Í niðurstöðum sínum segir kauphöllin m.a.: „Útgefandi verðbréfa ber ábyrgð á því að upplýsingar sem geta talist hafa marktæk áhrif á markaðsverð verðbréfa hans séu birtar í samræmi við ákvæði reglna Kauphallarinnar og að slíkar upplýsingar komi ekki fram í fjölmiðlum áður en þær eru gerðar opinberar með fullnægjandi hætti í samræmi við fyrrgreind ákvæði." Í tilkynningu um málið segir Exista undrast ákvörðun Kauphallar frá því í dag 20. desember enda er þar algerlega litið framhjá sjónarmiðum félagsins í viðkomandi máli. Samkvæmt ákvörðuninni bar Exista að hefja skráningarferli á nýjum hlutabréfum í flokki sem Kauphöllin hafði þegar samþykkt að taka úr viðskiptum í Kauphöllinni og hluthafafundur Exista hafði auk þess farið fram á að yrði afskráður tafarlaust. Vandséð er hvernig slíkt skráningarferli hefði þjónað hagsmunum fjárfesta og hluthafa félagsins. Exista hefur jafnframt leitast við að upplýsa fjárfesta um óvissa stöðu félagsins eins og kostur er, án þess að gefa út ótímabærar áætlanir og ágiskanir um væntanlega útkomu viðræðna sem félagið á nú í við tugi innlendra og erlendra fjármálastofnana. Með þeim hætti telur Exista að fylgt hafi verið ábyrgri upplýsingagjöf til fjárfesta. Exista er því ósammála ákvörðun Kauphallar en hyggst að öðru leyti ekki tjá sig um hana að svo stöddu.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira