Mæðraskilaboð Eyjamanna og lætin fyrir utan klefa FH eru nú á borði hjá HSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2020 09:15 Stuðningsmenn ÍBV hafa áður komist í fréttirnar fyrir skrílslæti. Vísir/Daníel
Ferð FH-inga til Vestmannaeyja í síðustu viku var ekki skemmtileg. Þeir töpuðu leiknum, duttu út úr bikarnum og máttu einnig þola mikil leiðindi af hálfu stuðningsmanna Eyjamanna. Stuðningsmenn ÍBV mættu meðal annars með myndir af mæðrum leikmanna í stúkuna og öskruðu og börðu á klefahurðina eftir leik þar sem ýmislegt var sagt um leikmennina. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildarinnar, vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið en blaðamaðurinn fékk meira upp úr leikmönnum FH-liðsins. „Þeir voru með myndir af mæðrum okkar í stúkunni og voru búnir að skrifa alls konar skilaboð á þær myndir. Það angraði mann lítið í leiknum. Eftir leik fórum við inn í klefa og þá voru læti í þeim, einhverjir 15-20 að berja á hurðina, segja að við værum aumingjar og fleira,“ sagði einn leikmaður FH-liðsins við Fréttablaðið. Hvíti Riddarinn, stuðningsmannasveit ÍBV í handboltanum, hefur áður komið sér í fjölmiðla fyrir skrílslæti. Róbert Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, staðfesti við Fréttablaðiðað málið væri komið inn á borð til sín og nú færi af stað vinna til að afla frekari gagna. „Við höfum heyrt að eitthvað hafi gengið á eftir bikarleik ÍBV gegn FH. Við höfum fengið skýrslu frá eftirlitsdómara og erum að afla frekari gagna áður en málið verður tekið fyrir hjá okkur,“ sagði Róbert. Það ku hafa verið senur í Coca - Cola bikarnum í Vestmannaeyjum í gær. Klefi FH - inga umsetin eftir leik. Einhverjir voru með myndir af mærðum FH - inga í stúkunni með skrýtnum skilaboðum. Ef satt reynist þá erum við á villigötum. Njótum leiksins sem er og var frábær.Eina.— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) February 7, 2020
Olís-deild karla Vestmannaeyjar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira