Viðskipti innlent

Össur endurgreiðir Vinnumálastofnun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Össur
Össur Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Össur hf. hefur tekið ákvörðun um að endurgreiða Vinnumálastofnun það fé sem runnið hefur til 165 starfsmanna félagsins á meðan þeir voru í hlutastarfi vegna COVID-19 faraldursins og hætta að nota úrræðið hér á landi. Upphæðin nemur um 20 milljónum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Össuri.

Áður höfðu Hagar og Skeljungur, bæði fyrirtæki á markaði, tilkynnt um endurgreiðslu á peningunum. Festi ætlar ekki að þiggja hlutabótaleiðina áfram. Að sama skapi hefur Kaupfélag Skagfirðinga sagst ætla að endurgreiða 17 milljónir.

Ríkistjórnin kynnti hlutabótaleiðina vegna kórónuveirufaraldurs í mars. 6.700 fyrirtæki nýttu sér úrræðið og 35-36 þúsund manns fengu greitt samkvæmt því síðustu mánaðamót.

Hefði að óbreyttu leitt til uppsagna

„Þegar Össur ákvað tímabundið, um miðjan apríl, að nýta sér úrræði stjórnvalda víða um heim hafði sala fyrirtækisins á heimsvísu minnkað um helming og var enn á niðurleið. Ljóst var að þessi þróun myndi hafa mikil áhrif á fjárhagsstöðu fyrirtækisins og því var gripið til víðtækra aðgerða til að minnka bæði umsvif og kostnað,“ segir í tilkynningu Össurar.

Þessar aðgerðir hafi haft áhrif á störf og starfshlutfall um 1.000 starfsmanna fyrirtækisins, þar af 165 á Íslandi. „Sú óvissa sem ríkt hefur um framtíðina hefði, án hlutabótaúrræðisins á Íslandi og sambærilegra mótvægisaðgerða í öðrum löndum, leitt til uppsagna hérlendis sem erlendis. Nú mánuði síðar er enn mikil óvissa, en merki eru um að markaðir fyrirtækisins séu að taka við sér á ný,“ segir í tilkynningunni.

Ekki „full samstaða“ um að fyrirtæki fái hlutabætur

Fyrirtækið segist vilja að gefnu tilefni taka fram að ákvörðun um arðgreiðslu vegna afkomu ársins 2019 var afgreidd áður en áhrif af COVID-19 faraldrinum voru ljós. Þá hafi kaupum á eigin bréfum verið hætt 17. mars, um mánuði áður en Össur nýtti sér úrræði stjórnvalda.

„Við erum stjórnvöldum hérlendis og erlendis afar þakklát fyrir aðgerðir sem hafa gert okkur kleift að viðhalda verðmætu ráðningarsambandi við okkar starfsmenn. Nú liggur fyrir að ekki er full samstaða hér á landi um að fyrirtæki nýti hlutabótaúrræðið. Það er okkur mikils virði að starfa í góðri sátt við samfélögin þar sem við störfum. Við greiðum því til baka alla þá fjármuni sem starfsmenn okkar hafa fengið hér á landi vegna hlutabótarleiðarinnar, sem námu um 20 milljónum króna á tímabilinu 18.-30. apríl.“


Tengdar fréttir

Segir að svo virðist sem sum fyrirtæki hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga árshlutauppgjörum

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir að það virðist sem svo að sum fyrirtæki, sem séu alls ekki í alvarlegum rekstrarvanda, hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga ársfjórðungsuppgjörum og með því ætlað sér að ganga í augum á fjárfestum. Hann segir þó að óvissan hafi verið mikil og því að einhverju leyti skiljanlegt að fyrirtækin hafi sótt í hlutabótaleiðina.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×