Sparnaður landsmanna fer í lífeyrissjóði og fasteignir Óli Kristján Ármannsson skrifar 22. febrúar 2016 10:30 Sparnaður landsmanna fer að ríflega fjórum fimmtu hlutum í fasteignir annars vegar og lífeyrissjóði hins vegar. Þar á milli er skiptingin nokkuð jöfn. vísir/stefán
Peningalegur sparnaður Íslendinga væri sáralítill ef ekki væru iðgjöld í lífeyrissjóði, segir í nýrri úttekt í efnahagsritinu Vísbendingu. Farið er yfir og sundurliðað eftir aldri fólks í hvað það leggur peningana sína. Hér er hlutur fasteigna og lífeyrissjóða stærstur, 42 og 41 prósent.Fram kemur að nýlega hafi birst grein í New York Times þar sem fólk hafi verið hvatt til að leggja allan sinn sparnað í hlutabréf, yfir lengri tíma sýndi sig að ávöxtun af þeim væri alltaf betri en af skuldabréfum. Um leið er bent á að hér kunni önnur lögmál að gilda, auk þess sem það hafi ákveðna annmarka að reiða sig bara á reynsluna til að spá um framtíðina. Hér hafi hlutabréfamarkaður hrunið nær algjörlega í fjárhagskreppunni 2008, en sú hafi ekki verið raunin erlendis. „Allir sjá að ekki var skynsamlegt fyrir nokkurn mann að eiga allt sitt í íslenskum hlutabréfum á þessum tíma.“ Vísbending bendir á að langstærstur hluti sparnaðar einstaklinga hér liggi í fasteignum og lífeyrissjóðum. „Aðeins um eitt prósent af eignum einstaklinga var í hlutabréfum í árslok 2014. Lífeyrissjóðirnir eiga auðvitað talsvert í hlutabréfum, en einstaklingar hafa ekki öðlast þá trú á hlutabréf sem þeir höfðu árið 2007.“ Margt bendi þó til að markaðurinn sé að „rétta úr kútnum“ að því leyti að fleiri einstaklingar vilji eignast hlutabréf. „En auðvitað hafa margir lagt aðaláherslu á að borga niður skuldir undanfarin ár, einmitt til þess að draga úr áhættu.“. Þegar horft sé á skiptingu sparnaðar Íslendinga í árslok 2014 komi í ljós að því fari fjarri að fólk fari eftir ráðum „spekingsins í New York Times“. Flestir hugsi fasteignir ekki endilega sem fjárfestingu fyrst og fremst, því einhvers staðar þurfi fólk að búa. Þá geri kostnaður krónunnar að verkum að fasteignir séu líkast til með slakari fjárfestingarkostum. „Jafnvel þó að menn fengju afborganalaust lán (það er menn borguðu aðeins vextina og höfuðstóllinn væri óskertur) er vafasamt að slíkt væri hagstætt hér á landi. Vextir eru 7 til 8 prósent í besta falli. Hlutabréfamarkaðurinn hefur hækkað um nálægt 10 prósent á ári frá hruni að meðaltali. Munurinn er varla nægur til þess að réttlæta það að hugsa íbúðina eingöngu sem fjárfestingu,“ segir í Vísbendingu.Athugasemd: Við greinina hefur verið bætt töflu og súluriti sem fyrir mistök í vinnslu birtust ekki í prentútgáfu fréttarinnar í Fréttablaðinu.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira