Viðskipti erlent

Vodafone ver 200 milljónum evra í að fjarlægja Huawei-búnað

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Uppbygging 5G-kerfisins hefur orðið einn af snertiflötunum í köldu stríði Kína og Bandaríkjanna.
Uppbygging 5G-kerfisins hefur orðið einn af snertiflötunum í köldu stríði Kína og Bandaríkjanna. Getty/Oliver Berg

Fjarskiptafyrirtækið Vodafone Group hefur í hyggju að fjarlægja íhluti frá kínverska tæknirisanum Huawei úr kjörnum fjarskiptaneta sinna í Evrópu. Frá þessu greindi forstjóri Vodafone á blaðamannafundi í morgun. Ætlað er að taka muni um fimm ár að fjarlægja íhlutina og að það muni kosta Vodafone um 200 milljón evrur. Forstjóri Sýnar telur að þetta muni þó ekki snerta starfsemi Vodafone á Íslandi.

Forstjóri Vodafone Group, Nick Read, sagði að ákvörðun fyrirtækisins mætti rekja til tveggja nýlegra vendinga. Annars vegar takmörkuðu bresk stjórnvöld á dögunum aðkomu Huawei að uppsetningu 5G-kerfisins þar í landi. Þannig er óheimilt að nota íhluti frá Huawei nærri herstöðvum og kjarnorkuverum. Auk þess má búnaður frá Huawei ekki vera í kjarna dreifikerfisins, þar sem öll helstu gögn flæða í gegn, á Bretlandseyjum. Var það gert vegna viðvarana, ekki síst frá bandarískum stjórnvöldum, um að Kína geti hagnýtt búnað Huawei til njósna eða annarra óeðlilegra afskipta.

Hins vegar gaf Evrópusambandið nýlega út fyrirmæli, sem kölluð eru verkfærakista, um hvernig skuli standa að uppbyggingu 5G-netsins í Evrópu. Þar er til að mynda drepið á hættunni sem getur fylgt því að ríki verði of háð einum birgja, auk þess sem varað er við því að erlend ríki geti haft áhrif á 5G-kerfin með þrýstingi á framleiðendur búnaðarins.

Þessi varúðarorð tóna óneitanlega við málflutning Bandaríkjastjórnar á síðustu misserum, sem varaforseti Bandaríkjanna viðhafði .d. á tröppum Höfða síðastliðið haust. 

Hrafnkell Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunnar, sagði í samtali við Spegilinn að það megi óneitanlega greina bandarískan tón í verkfærakistu ESB.

„Mér sýnist vera sammælst um það innan Evrópusambandsins að taka á þessum nýju hættum með þessum samræmda hætti,“ sagði Hrafnkell.

Fyrrnefndur Nick Read segir að ákvörðunin um að fjarlægja Huawei-búnað úr kjörnum dreifikerfisins muni einna helst hafa áhrif á Spáni og í Austur-Evrópu. Ekki þurfi að ráðast í stórvægilegar aðgerðir í Bretlandi því Huawei-tækni sé ekki finna í þarlendum kjörnum. Hann nýtti tækifærið á blaðamannafundi í morgun til þess að hrósa breskum stjórnvöldum fyrir að fara ekki að tilmælum Bandaríkjanna og útiloka Huawei fullkomlega frá uppbyggingu 5G-kerfisins þar í landi. Nálgun Breta sé „byggð á staðreyndum“ og geri greinarmun á kjörnum og öðrum þáttum dreifikerfisins.

Reid segist óttast að fyrirmæli Evrópusambandsins um að ríki reiði sig á marga birgja séu til þess fallin að hægja á uppbyggingu 5G-netsins í Evrópu. „Bandaríkin þjóta áfram, Kína þýtur áfram. Við megum ekki láta þessa uppbyggingu sitja á hakanum og því tel ég að þessar takmarkanir séu heftandi að þessu leyti.“

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.Vísir/vilhelm

Aðspurður um ákvörðun Vodafone í Evrópu segist Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar sem rekur Vodafone á Íslandi, ekki telja að hún muni hafa áhrif hér á landi. Hún lúti aðeins að uppbyggingu 5G-netsins í Evrópu, sem er ekki hafin hér á landi. „Ástæðan er sú að Ísland er ljósleiðaravæddasta land í heimi og þar sem mest er verið að byggja upp 5G í dag er þar sem ekki er búið að ljósleiðaravæða,“ segir Heiðar og bætir við að þetta tengist því ekki 2G, 3G, eða 4G-kerfunum.

Heiðar hefur talað máli Huawei í íslenskum fjölmiðlum og ekki talið fyrirtækið þá öryggisógn sem látið er í veðri vaka. Hann telur ekki tilefni til að breyta þeirri afstöðu sinni, þrátt fyrir þessa nýjustu ákvörðun Vodafone, og nefnir þróunina í Evrópu máli sínu til stuðnings.

„Boris Johnson og ríkisstjórninn ákvað í síðustu viku að láta ekki undan kröfum USA að banna Huawei. Það eru mörg kerfi frá Huawei í uppbyggingu í Englandi varðandi 5G og uppbygging þeirra hófst fyrir ári síðan,“ segir Heiðar. „Svíþjóð og Finnland eru þegar búin að kveikja á 5G kerfum frá Huawei og Danmörk er á leiðinni. Huawei er á 10 sinnum fleiri stöðum í Evrópu en helsti samkeppnisaðilinn, Ericsson.“

Vísir er í eigu Sýnar


Tengdar fréttir

Segja Færeyjar orðnar óvæntustu vígstöðvar deilna Bandaríkjanna og Kína

Bandaríska blaðið New York Times segir að Færeyjar séu orðnar nýjustu vígstöðvarnar í köldu stríði sem nú geisar á milli Bandaríkjanna og Kína vegna tæknimála. Í stórri grein fjallar blaðið ítarlega um mál sem nýverið kom upp í Færeyjum og tengist uppbyggingu á 5G-samskiptaferi landsins.

Hvatti Íslendinga til að hafna Huawei

Mike Pence segir að í ljósi aukins áhuga Rússa og Kínverja á norðurslóðum hafi aldrei verið mikilvægara fyrir Bandaríkin að tryggja góð samskipti við Ísland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×