Viðskipti erlent

Segja Færeyjar orðnar óvæntustu vígstöðvar deilna Bandaríkjanna og Kína

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá Þórshöfn í Færeyjum.
Frá Þórshöfn í Færeyjum. EPA/GEORGIOS KEFALAS

Bandaríska blaðið New York Times segir að Færeyjar séu orðnar nýjustu vígstöðvarnar í köldu stríði sem nú geisar á milli Bandaríkjanna og Kína vegna tæknimála. Í stórri grein fjallar blaðið ítarlega um mál sem nýverið kom upp í Færeyjum og tengist uppbyggingu á 5G-samskiptaferi landsins.

Málið má rekja til þess að ríkisstjórn Færeyja fékk fyrr í mánuðinum lögbann á fréttaflutning upp úr upptöku þar sem heyra mátti Helgi Abrahamsen, viðskiptaráðherra Færeyja, ræða það við aðstoðarmann sinn að sendiherra Kína í Danmörku hafi hótað háttsettum embættismönnum Færeyja. Ekkert yrði af fríverslunarsamningi á milli Kína og Færeyja ef kínverska tæknifyrirtækið Huawei fengi ekki að byggja 5G-samskiptakerfi landsins.

Yfirvöld Bandaríkjanna hafa þrýst á Evrópuríki að útiloka Huawei frá uppbyggingu 5G-kerfa og segja fyrirtækið geta verið notað af yfirvöldum Kína til njósna. Skemmst er að minnast þess þegar Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, hvatti Íslendinga eindregið til að hafna Huawei, er hann kom hingað til lands fyrr á árinu.

Forsvarsmenn Huawei og yfirvalda Kína hafa á undanförnum mánuðum ítrekað haldið því meðal annars fram að fyrirtækið sé einkafyrirtæki og yfirvöld komi ekki að rekstri þess.

Bandaríkin hafa þrýst verulega á Evrópuríki að nýta sér ekki þjónustu Huawei við uppbyggingu samskiptakerfa. Ríkisstjórn Kína geti þvingað forsvarsmenn fyrirtækins til að starfa með sér varðandi njósnir og ýmislegt annað.AP/Mark Schiefelbein

Óttast möguleg áhrif á útflutning á laxi til Kína

Í frétt New York Times er meðal annars rætt við Sjúrð Skale, einn af þingmönnum Færeyinga á danska þinginu.

„Það að kínverska og bandaríska sendiráðið séu að rífast yfir þessu af jafn miklum krafti sýnir að það er eitthvað sem býr að baki. Þetta snýst eitthvað annað en bara einhver viðskipti,“ sagði Sjúrður í samtali við New York Times.

Í greininni segir að deilurnar um hvort Huawei fái að byggja upp 5G-samskiptakerfi í Færeyjum, þar sem um 50 þúsund íbúar búa, sýnir að ekkert landsvæði sé of lítið til þess að verða miðpunkturinn í tæknideilu Bandaríkjanna og Kína.

Carla Sands, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku hefur blandað sér í deiluna en í skoðanagrein sem birtist í Bornholms Tidende á dögunum varaði hún við því að ef Huawei fengi að byggja upp kerfið í Færeyjum myndi það hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér.

Í greininni kemur fram að áhyggjur Færeyinga af málinu snúist frekar um laxa en hversu hraðar nettengingar munu bjóðast með 5G-kerfinu. Þannig sé sjö prósent af laxaframleiðslu Færeyinga seld til Kína á ársgrundvelli. Í greininni segir að ef samskipti við Kínverja skaðist vegna málsins geti það haft slæmt áhrif á útflutning á laxaútflutninginn.

Lesa má hina ítarlegu grein New York Times um málið hér.


Tengdar fréttir

Meintar hótanir Kína gagnvart Færeyjum valda usla

Helgi Abrahamsen, viðskiptaráðherra Færeyja, náðist á upptöku ræða það við aðstoðarmann sinn að sendiherra Kína í Danmörku hafi hótað háttsettum embættismönnum Færeyja.

Hvatti Íslendinga til að hafna Huawei

Mike Pence segir að í ljósi aukins áhuga Rússa og Kínverja á norðurslóðum hafi aldrei verið mikilvægara fyrir Bandaríkin að tryggja góð samskipti við Ísland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×