Skyrið heitir nú ÍSEY skyr Haraldur Guðmundsson skrifar 26. janúar 2017 14:21
Mjólkursamsalan (MS) hefur látið hanna nýtt vörumerki fyrir skyr og gefið því nafnið ÍSEY skyr. Vörumerkið var unnið í samstarfi við innlenda og erlenda ráðgjafa í vörumerkjahönnun. Samkvæmt tilkynningu MS vísar nafnið í Ísland og er auk þess íslenskt kvenmannsnafn en íslenskar konur sáu öldum saman um að búa til skyr. Að mati MS þykir nafnið einnig hentugt vegna þess að það er stutt og einfalt og auðvelt að bera fram á mismunandi tungumálum. „ÍSEY skyr verður skráð vörumerki MS fyrir skyri þegar unnið er í samkeppni á erlendum mörkuðum við aðila sem framleiða og selja vöru sem kölluð er skyr. Til að hafa samræmi og heildstæða stefnu í markaðs- og vörumerkjavinnu með íslenska skyrið verður vörumerkið ÍSEY skyr einnig tekið upp á Íslandi. Skyrsala MS á Íslandi og á erlendum mörkuðum hefur aldrei verið meiri en á árinu 2016. MS og samstarfsaðilar þess á Norðurlöndum seldu um 16.000 tonn af skyri á síðasta ári. Á Íslandi seldist um 3.000 tonn og erlendis voru seld um 13.000 tonn. Söluaukning á skyr.is innanlands var um 25% á síðasta ári sem er söluaukning sem á sér ekki fordæmi. Skýringin á þessari miklu söluaukningu innanlands er rakin til aukins ferðmannastraums til landsins,“ segir í tilkynningu MS. Stefnt er að því að vörumerkið verði kynnt í Sviss og Englandi á þessu ári. Jafnframt verði hafin sala á ÍSEY skyri í Benelux-löndunum á vormánuðum þar sem nýja vörumerkið verður jafnframt kynnt. Þá eru samningaviðræður hafnar við áhugasama aðila í Rússlandi, Nýja Sjálandi og Ástralíu um markaðssetningu og sölu á ÍSEY skyri.
Mest lesið Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Fleiri fréttir Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Sjá meira