Gleyma seint fyrstu Íslandsheimsókninni Guðný Hrönn skrifar 16. mars 2018 12:15 Karl Hyde heillaðist af Íslandi þegar hann kom hingað árið 1994 og er spenntur fyrir helginni. Vísir/Getty
Breska hljómsveitin Underworld, ein fremsta og þekktasta hljómsveit á sviði danstónlistar, mun spila á Íslandi um helgina á hátíðinni Sónar Reykjavík. Meðlimir sveitarinnar, Karl Hyde og Rick Smith, lofa flottu „sjói“ á tónleikunum en þeir eru þekktir fyrir magnaða sviðsframkomu. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Underworld spilar á Íslandi því þeir félagar komu fram á tónleikum með Björk sumarið 1994 í Laugardalshöll. Beðinn um að rifja það upp segir Karl: „Þetta var svo snemma á ferli okkar, við vorum ekki einu sinni búnir að gera Born Slippy. Þannig að Born Slippy hefur aldrei verið spilað „live“ á Íslandi.“ Þess má geta að Born Slippy er þekktasta lag sveitarinnar og kom úr árið 1996.„Þegar við vorum hérna þá spiluðum við á tónleikum ásamt Björk. Björk fór fyrst á svið og svo við. Og forsetinn var þarna klædd í hvítt, hún var svo almennileg við okkur,“ segir Karl. Eftir tónleikana fóru þeir á djammið. „Við kynntumst mörgu fólki og það sýndi okkur Reykjavík. Við sáum fólk þrífa bílana sína klukkan fjögur um nóttina og sáum fólk labba heim af djamminu á sama tíma! Að sjá það var alveg ný lífsreynsla,“ segir Karl og hefur orð á því hvað birtan á þessum tíma hafi verið undarleg en falleg. Þeir fylgdust með sólinni lækka á lofti og hækka aftur, án þess að setjast alveg. „Við höfðum aldrei séð þetta áður. Þetta var súrrealískt og dásamlegt.“ Karl tekur fram að þeir hafi rifjað þessa nótt upp reglulega síðan árið 1994.Rick Smith og Karl Hyde.Semja og taka upp á hótelherbergjum Það er óhætt að segja að Underworld sé langlíf en sveitin hefur verið starfandi frá árinu 1980 og spilað víða um heim á þeim tíma. Karl viðurkennir að það geti verið krefjandi að ferðast um heiminn og spila. „Stundum, þegar klukkan er kannski 3.30 um nótt og við þurfum að fara á svið þá kvarta líkamar okkar og heimta svefn. En svo, þegar Rick „droppar“ bassanum þá flæðir adrenalínið og maður byrjar að dansa ósjálfrátt. Svo þegar maður yfirgefur sviðið einhverjum 90 mínútum seinna þá er maður glaðvakandi, mun meira heldur en þegar maður fór á svið.“ Karl og Rick hafa komist upp á lagið með að semja og taka upp tónlist á meðan þeir ferðast. „Við semjum og tökum að mestu leyti upp í hótelherbergjum. Það að ferðast með hópi vina sem við höfum þekkt lengi og þykir vænt um, hæfileikaríkum listamönnum, gerir tónleikaferðalög að hálfgerðum ævintýrum,“ útskýrir Karl. Hann segir tónleikaferðalögin vera eitthvað sem þeir fá aldrei leiða á. „Þetta er það sem gefur okkur orku.“Spennandi helgi fram undan Karl er spenntur fyrir helginni enda er hann mikill aðdáandi Íslands. „Ég var svo snortinn eftir þessa heimsókn til Íslands árið 1994 að ég sneri til baka um leið og ég gat. Einu sinni til að fagna fertugsafmælinu mínu því mig dreymi um að fagna því uppi á jökli, og ég gerði það! Og svo kom ég aftur til að sjá norðurljósin.“ Spurður út í hvort þeir félagar séu með einhver plön fyrir Íslandsdvölina í þetta sinn segir Karl: „Núna munum við hitta gamla vini og byggja skúlptúra ef tími gefst.“ Karl Hyde tekur að lokum dæmi um það sem tónleikagestir mega búast við á laugardaginn: „Laserum, samtölum á milli okkar og ykkar, takti, ljósum, dansi, svita og gleði.“Nokkrir punktar um Underworldmeðlimir eru Karl Hyde og Rick Smith l frá Englandistarfandi frá árinu 1980þekktir fyrir mikilfenglega sviðsframkomuhafa gefið út níu hljóðversplöturþekktasta lag þeirra er Born Slippyhafa átt lög í fjölmörgum kvikmyndum, svo sem Trainspotting, The Beach, Biutiful og Vanilla Sky
Birtist í Fréttablaðinu Sónar Mest lesið „Restin í hárið“ reglan gildir í Flonkyball Lífið samstarf „Það er einmanalegt að missa móður“ Lífið Trúlofuðust á gjörgæslunni eftir bílslys á Íslandi Lífið Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Þyrlur, forsetaframbjóðendur og skemmdarverk Lífið Ellý snýr aftur vegna fjölda áskorana Lífið Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Lífið Karl konungur snýr aftur úr veikindaleyfi Lífið Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu Lífið Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Lífið Fleiri fréttir Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Kaleo gefur út sitt fyrsta lag í þrjú ár Víkingur Heiðar á smáskrifborðstónleikum Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Fögnuðu ekki bara plötunni með Júlí Heiðari heldur lífinu sjálfu „Fór langt fram úr mínum björtustu vonum“ Draumkennd framtíðarvitrun frá heitustu danssveit landsins Átján ára og stefna langt Súperstjörnur landsins fögnuðu með GDRN Hlustendaverðlaunin 2024: Þegar Sveppi og Ásgeir Orri mættu óvænt á sviðið Ítalski píanistinn Maurizio Pollini látinn Hlustendaverðlaunin 2024: Barnakór tók undir með XXX Rottweiler Níu bónorðsbréf til sömu konunnar innblásturinn að nýjustu plötunni Hlustendaverðlaunin 2024: Tónlistaratriðin sem slógu í gegn Myndaveisla: Margt um dýrðir á Hlustendaverðlaunum 2024 Galið að geyma lagið í skúffunni Sjá meira